Karfan er tóm.
Liqvita ADE 60 er fljótandi vökvi sem inniheldur selen, A-, D- og E-vítamín. Varan hefur reynst mjög vel við selen- og vítamínskorti í öllu búfé.
Selen hefur áhrif á fósturþroska og vöðvaþroska alls ungviðis.
A-, D-, og E-vítamín eru fityleysanleg vítamín, þannig að þau skiljast ekki út jafnóðujm og nýtast því í einhvern tíma eftir að inngjöf er hætt. A-vítamín hefur áhrif á frjósemi og fósturþroska. D-vítamín er mikilvægt fyrir kalsíum- og fosfórefnaskiptin, það eykur upptöku á kalki úr meltingarvegi og dregur úr líkum á doða. E-vítamín er nátengt seleni. Þau eru andoxunarefni sem m.a. koma í veg fyrir skaðleg áhrif niðurbrotsefna.
Innihald: Vatn, forblanda, glúkósi, dínatríumfosfat. 
Greiningarþættir: Raki 76%; Hráprótein 0%; Hráfita 15%; Hrátrefjar 0%; Hráaska 0,47%, Natríum 1,45 g/kg, fosfór 0,04 g/kg, magnesíum 0,99 g/kg.   
A-vítamín (3a672b) 30.000 AE/g; D-vítamín (E671) 20 AE/g; E-vítamín (alhandhverfu alfatokoferól asetat. 3a700) 66.000 mg/kg; Selen (natríumselenít E8) 50 mg/kg.
Tæknileg aukefni: Glýserólpólýetýlenglýkólrísínóleat (E484), sítrónusýra (E330), sorbínsýra (E200), bútýlhýdroxýanísól (E320), própýlgallat (E310).
Ráðlagður skammtur á dag:
- Kýr 25 ml
 - Kvígur 15 ml
 - Kálfar 5 ml
 - Kindur 2 ml
 - Hestar 15 ml
 - Folöld 6-7 ml
 - Hænur 2-2,5 ml á hvert kg fóðurs
 - Minkar 2-2,5 ml á hvert kg loftþurrkaðs fóðurs
 
Notkun: hægt er að gefa Liqvita ADE 60 beint út á hey, blanda því saman við heilfóður eða blanda því saman við drykkjarvatn með dælubúnaði. 
Gyltur: Ráðlagt er að gefa gyltum Liqvita ADE60 í um 10 daga (7 daga fyrir got og 3 daga eftir)
Kýr: ráðlagt er að gefa kúm í 2 vikur fyrir lok geldstöðu og þar til næsta geldstaða er staðfest. 
Önnur kven-spendýr: frá síðasta hluta geldstöðu þar til næsta geldstaða er staðfest. 
Karldýr: meðan á fengitíma stendur.  
Æskilegt er að gefa Liqvita ADE 60 í nokkurn tíma í einu.
ATH: of mikil selengjöf getur leitt til eitrunar.