Fara í efni
Nýtt
Vörunúmer: BTR10052

Pavo 18Plus Vital poki 8 kg

Verðm/vsk
9.590 kr.

Pavo 18Plus Vital er svokallað jafnvægisfóður (balancer) til daglegrar notkunar fyrir eldri hesta sem veitir öll nauðsynleg vítamín, steinefni og snefilefni án viðbótarorku. Fóðrið er þróað fyrir þarfir eldri hesta og inniheldur góðgerlaafurðir, andoxunarefni og trefjar úr vallarfoxgrasi og ösnugrasi (Onobrychis sativa) sem styðja við meltingu, ónæmiskerfi og almennt heilbrigði. Kornlaust og með mjög lágt sykur- og sterkjuinnihald.

Verðm/vsk
9.590 kr.

Pavo 18Plus Vital
Daglegt jafnvægisfóður fyrir eldri hesta

Jafnvægisfóður fyrir eldri hesta

Pavo 18Plus Vital er sérhannað vítamína- og steinefnajafnvægisfóður (balancer) fyrir eldri hesta. Fóðrið leggur til öll nauðsynleg vítamín, steinefni og snefilefni og uppfyllir daglegar þarfir eldri hesta án þess að bæta við mikilli orku eða hitaeiningum. Þetta gerir vöruna einkar hentuga fyrir eldri hesta sem eru í góðum holdum eða bæta auðveldlega á sig. 

Þarfir eldri hesta fyrir vítamín, steinefni og snefilefni eru frábrugðnar þörfum yngri og fullorðinna hesta. Pavo 18Plus Vital inniheldur sérsniðna blöndu vítamína og steinefna sem þróuð hefur verið sérstaklega með þarfir eldri hrossa í huga.

Fóðrið inniheldur einnig Intellibond® snefilefni sem bæta upptöku og nýtingu steinefna á borð við kopar og sink. Þar sem snefilefnin losna fyrst í maga en ekki í munni eru þau lystugri sem minnkar líkur á að hestar fúlsi við fóðrinu. Það leiðir einnig til minni áhrifa á meltingarveginn.

Pavo 18Plus Vital byggir á trefjaríkum hráefnum eins og vallarfoxgrasi og ösnugrasi (Onobrychis sativa) sem styðja við heilbrigða meltingu. Fóðrið inniheldur einnig góðagerlaafurðir með MOS og beta-glúkunum sem styðja við heilbrigða þarmaflóru og ónæmiskerfi. Öflug blanda andoxunarefna hjálpar jafnframt til við að vernda frumur líkamans gegn áhrifum sindurefna og styður við heilbrigði og lífsþrótt eldri hesta.

Pavo 18Plus Vital er án korns, melassa og viðbætts sykurs og hefur mjög lágt sykur- og sterkjuinnihald. Það hentar því sérstaklega vel eldri hestum sem eru viðkvæmir fyrir sykri, sterkju eða korni.

Fóðrið má gefa bæði þurrt eða uppbleytt og hentar það því einnig hestum með lélega tannheilsu eða skerta tyggigetu.

Hentar sérstaklega fyrir: eldri hesta í góðu holdafari eða sem eiga til að vera of þungir, hesta með skerta tannheilsu og hesta sem þurfa vítamín og steinefni án viðbótarorku.

Fóðrunarleiðbeiningar:
16,5 g á hver 100 kg líkamsþyngdar á dag.

Hestur 300 kg: um 50 g á dag.
Hestur 600 kg: um 100 g á dag.

Pavo 18Plus Vital má gefa þurrt eða bleytt. Við uppbleytingu skal blanda 1 hluta af Pavo 18Plus Vital saman við 4 hluta af volgu vatni. Látið standa í um 10 mínútur í volgu vatni eða 20 mínútur í köldu vatni áður en fóðrað er.

Samsetning: Vallarfoxgras, graskögglar, ösnugras (Onobrychis sativa), mónókalsíumfosfat, salt, kalksteinn, gerafurð (AGRIMOS®), afurðir úr vinnslu Rosmarinus officinalis og Curcuma longa.

Greiningarþættir: Meltanleg orka (DE) 1 MJ/kg, hráprótein 10,8%, hrátrefjar 25%, hráfita 4%, hráaska 15,6%, sykur 4,5%, sterkja 1,7%, kalsíum 2,58%, fosfór 1,02%, magnesíum 0,22% og natríum 0,75%.

Aukefni pr. kg: Kólín 600 mg, A-vítamín 175.000 AE, D3-vítamín 50.000 AE, E-vítamín 5.250 AE, C-vítamín 5.000 mg, B1-vítamín 500 mg, B2-vítamín 500 mg, B6-vítamín 250 mg, B12-vítamín 2.000 mcg, K3-vítamín 100 mg, D-bíótín 26.250 mcg, pantóþensýra 500 mg, níasínamíð 750 mg og fólínsýra 225 mg.

Snefilefni pr. kg: kopar 2.000 mg, joð 25 mg, mangan 2.000 mg, selen 16 mg og sink 2.500 mg.

Magn: 8 kg poki.