Fara í efni
Vörunúmer: AK44873

Premium Horse Wire rafgirðingavír 250 m, Ø 8 mm

Verðm/vsk
44.990 kr.

Premium Horse Wire rafgirðingavír er sniðinn að þörfum hestaeigenda sem vilja bæði öryggi og endingu.

Nafn Premium rafgirðingavír 250m
Verð
Verðm/vsk
44.990 kr.
Birgðir 7
Gerð
Premium rafgirðingavír 250m

Nafn Samsetning fyrir Premium vír
Verð
Verðm/vsk
1.890 kr.
Birgðir 12
Gerð
Samsetning fyrir vír - 1 stk

Verðm/vsk
44.990 kr.

Öflugasta rafgirðingakerfið fyrir hesta!

Premium Horse Wire rafgirðingavírinn sameinar mikla leiðni og áreiðanlega vörn. Innra lagið er úr 2,5 mm stálvír sem þolir allt að 800 kg togkraft. Ytri kápan er úr hvítu og svörtu rafleiðnu plastefni sem ver vírinn fyrir veðri og vindum.

Slétt og ávalt yfirborð ásamt 8mm þvermáli minnkar hættu á skurðum eða sárum ef dýr rekast í vírinn og eykur sýnileikann til muna – þetta gerir girðinguna sérstaklega örugga fyrir hesta og getur vírinn hentað vel í t.d. graðhestahólf þar sem mikið getur gengið á.

Eiginleikar:

  • Frábær rafleiðni: 0,035 ohm/m
  • Styrkur: Togþol allt að 800 kg
  • Sérlega veðurþolinn: Þolir kulda, hita og raka
  • Mjög sýnilegur: Þökk sé hvítum lit og 8 mm þvermáli
  • UV vörn: Ytra byrði úr UV-þolnu pólýetýleni
  • Minnkar slysahættu: Slétt og ávalt yfirborð

Vírinn kemur í 250 m rúllum. Þvermál vírs er 8 mm. Þvermál innri þanvírs 2,5mm.

Ráðlögð hámarkslengd girðingar er 57 km.