Karfan er tóm.
AgraStretch er þolið og sterkt gæðarúlluplast með góða límeiginleika frá BSK & Lakufol í Þýskalandi. Fæst í þremur litum í hefðbundnum 75cm x 1500m rúllum, í 25 míkrona þykkt. Plastið er 5 laga. 40 stk. á bretti. Agrastretch hefur átt mjög góðu gengi að fagna hérlendis og á sér sístækkandi hóp notenda sem bera því vel söguna.
AgraStretch rúlluplastið kemur á PE plastkjarna, en plastkjarninn kemur í veg fyrir að hann þenjist í rakviðri. Þaninn pappakjarni getur valdið slitum og vandræðum þegar lítið fer að verða eftir á keflinu.
AgraStretch 2S rúlluplastið kemur frá BSK & Lakufol í Þýskalandi. BSK & Lakufol starfrækir plastverksmiðju í Henfenfeld í Þýskalandi sem búin er nútímalegum og tæknilega fullkomnum búnaði. BSK & Lakufol hóf rúlluplastframleiðslu árið 1987, var fyrst þýskra plastframleiðenda og býr því að mikilli þekkingu og reynslu á þessu sviði. Framleiðsla BSK & Lakufol fylgir ítrustu gæðakröfum og stöðlum fyrir kröfuharðan þýskan markað.