Karfan er tóm.
Pavo Fertile er fóðurbætir sérstaklega ætlaður ræktunarhryssum. Stundum sýna hryssur ekki skýr merki þess að þær séu að ganga, sem getur leitt til óvissu um hvenær best sé að leiða þær undir stóðhest. Pavo Fertile getur aukið sýnileika gangmála hjá hryssum og aukið líkur á að þær festi fang.
Pavo Fertile styður við aukna frjósemi með því að örva egglos og auka líkur á myndun heilbrigðs eggbús. Varan er sérstaklega þróuð fyrir hryssur sem sýna illa hvenær þær ganga.
Pavo Fertile inniheldur hátt hlutfall af E-vítamíni, C-vítamíni og B11-vítamíni (fólínsýru) sem eru mikilvæg þegar kemur að frjósemi. Að auki inniheldur varan beta-karóten ásamt kopar, sinki og mangani en saman eru þetta þættir sem hjálpa til við að undirbúa hryssu og gera hana móttækilega fyrir frjóvgun. Pavo Fertile inniheldur ekki hveiti og hentar því hrossum sem eru viðkvæm fyrir glúteni.
Lykilþættir
- Styður við frjósemi hryssa
- Styður við þroskun á heilbrigðu eggbúi
- Ýtir undir skýrari merki gangmála hjá hryssum
- Inniheldur E-vítamín, beta-karóten og ýmis snefilefni
Ráðlagður skammtur/dag fyrir hest pr. hver 100 kg af lífþunga: 16,5 g, blandað við annað fóður.
Notist frá þremur vikum fyrir þann tíma sem ætla má að hryssan gangi og 10 daga framyfir. Ávallt skal tryggja gott aðgengi að vatni.
Greiningarþættir: Hráprótein 14,0%, hráfita 3,2%, hrátréni 18,8%, hráaska 10,0%, kalsíum 1,1%, fosfór 0,46%, natríum 0,27%.
Aukefni (pr. kg): Vítamín: Beta-karótín (3a160(a)) 4000 mg, E-vítamín (3a700) RRR-alfa-tókóferólasetat 7350 AE, C-vítamín (3a312) 5000 AE, fólínsýra (3a316) 300 mg.
Snefilefni: Kopar (3b406) kelat af amínósýrum (hýdrat) 250 mg, sink (3b612) kelat af amínósýrum (hýdrat) 1300 mg, mangan (3b505) kelat af amínósýrum (hýdrat) 1100 mg.
Innihald: Refasmári, rúgklíð, hörfræolía, dextrósi.