Karfan er tóm.
Country’s Best Gold 1&2 Mash er vandað ungafóður fyrir varphænsnaunga. Fóðrið hentar frá klaki og fram að varpskeiði. Þetta gerir það sérstaklega hentugt fyrir hobbýhænsnaeigendur sem eru með fáa unga og vilja einfalda, örugga og þægilega lausn í 5 kg poka.
Fóðrið er hugsað sem start- og vaxtarfóður þar sem áhersla er lögð á jafnan þroska frekar en of hraðan vöxt. Á uppeldistímanum þurfa hænsnaungar stöðuga næringu, góða fóðurinntöku, nægt prótein, orku, vítamín og steinefni til að byggja upp vöðva, fjaðrir og stoðkerfi. Rétt fóðrun á þessu tímabili leggur grunn að hraustum unghænum og góðum undirbúningi fyrir komandi varpskeið.
Fóðrið er á "mash"-formi, samsett úr brotnu og völsuðu korni, en þetta hvetur fuglana til að éta hægar og innbyrða það jafnar. Það getur stutt betri meltingu og jafnari nýtingu fóðursins. Fóðrið er án hníslalyfs og því er óhætt fyrir verpandi fugla að innbyrða það.
Þegar fuglarnir fara að nálgast varpaldur er æskilegt að færa þá smám saman yfir á varpfóður. Þá má blanda varpkögglum hægt og bítandi saman við ungafóðrið og auka hlutfall varpfóðurs eftir því sem fuglarnir þroskast. Þegar hænurnar eru komnar að varpi ættu þær að vera komnar yfir á fóður sem er sérstaklega samsett fyrir kalkþörf og næringarþarfir verpandi hæna.
• Ungafóður fyrir hænsnaunga frá klaki og fram að fyrsta eggi.
• Hentar vel fyrir hobbýhænsnaeigendur með fáa unga eða minni hænsnahópa.
• 5 kg poki er meðfærilegur og hentugur þegar ekki þarf stóran fóðurpoka.
• Styður jafnan vöxt, fjaðramyndun, stoðkerfi og almennan þroska.
• "Mash"-form stuðlar að hægari og jafnari fóðurinntöku.
• Samsett til að styðja eðlilegan vöxt án of hraðrar fitusöfnunar.
• Án hníslalyfs og hentar þar sem óskað er eftir náttúrulegri uppeldisfóðrun auk þess sem óhætt er fyrir varphænur að innbyrða það.
• Gott er að tryggja ungum alltaf hreint vatn og aðgengi að smágrýti (grit) fyrir meltingu.
• Við varpaldur skal færa fuglana rólega yfir á varpfóður.
Samsetning: Hveiti, maís, soja (erfðabreytt), sólblómafræ, maísklíð, hrísgrjónaklíð, hveiti, kalsíumkarbónat, sojaolía, sykurreyrsmelassi, mónókalsíumfosfat, natríumklóríð, natríumbíkarbónat.
Greiningarþættir: Hráprótein 16,5% Hráfita 5,0% Hráaska 6,0% Tréni 4,0% Metíónín 0,36% Lýsín 0,83% Fosfór 0,64% Kalsíum 1,10% Natríum 0,15%
Aukefni (pr. kg): Tæknileg aukefni: E321 BHT 80 mg E310 própýlgallat 10 mg. Vítamín: 3a672a A-vítamín 10.000 AE 3a671 D3-vítamín 2.500 AE 3a700 E-vítamín (all-rac-alfa-tókóferýlasetat) 30 mg E1 járn (járn(II)-súlfat, mónóhýdrat) 30 mg 3b202 joð (kalsíumjoðat, vatnsfrítt) 2,1 mg E4 kopar (kopar(II)-súlfat, pentahýdrat) 10 mg 3b502 mangan (mangan(II)-oxíð) 75 mg 3b603 sink (sinkoxíð) 70 mg E8 selen (natríumselenít) 0,30 mg. Önnur fóðurfræðileg aukefni: 4a1617 endó-1,4-beta-xýlanasi (EC 3.2.1.8) 1.500 EPU/kg 4a16 6-fýtasi (EC 3.1.3.26) 250 OTU.