#BLEIKASLAUFAN
Lífland og topreiter sameina krafta sína í þessari sérhönnuðu hettupeysu, sem er framleidd til stuðnings mikilvægu málefni sem snertir okkur öll.
Helmingur ágóða af hverri seldri peysu rennur beint til Krabbameinsfélagsins.
Peysan sameinar þægindi, gæði og fallega hönnun með skýrum boðskap um samstöðu, von og stuðning.
Með kaupum á þessari takmörkuðu útgáfu tekur þú þátt í að vekja athygli á baráttunni gegn krabbameini og styðja við mikilvægt starf Bleiku slaufunnar.