Fara í efni
Vörunúmer: MLFP9981

Mervue Vet Tech ELITE SHEEP 2,5L

Verðm/vsk
21.990 kr.

Vet Tech ELITE SHEEP er sérfóður fyrir sauðfé sem leggur til snefilefni, vítamín og amínósýrur með langtímaverkun. Varan er þróuð til að styðja við frjósemi, heilsu og afurðasemi hjarðarinnar og er sérstaklega hentug í aðdraganda fengitíðar og burðar.

Verðm/vsk
21.990 kr.

Vet Tech ELITE SHEEP – Fyrir frjósamt og frísklegt fé

Vet Tech ELITE SHEEP er sérfóður fyrir sauðfé sem leggur til snefilefni, vítamín og amínósýrur með langtímaverkun. Varan er þróuð til að styðja við frjósemi, heilsu og afurðasemi hjarðarinnar og er sérstaklega hentug í aðdraganda fengitíðar og burðar. Efnið er gefið um munn með inngjafarbyssu/skammtara.

Lykileiginleikar

  • Klóbundin snefilefni (sérstaklega sink og járn) tryggja hátt frásog og betri nýtingu
  • Inniheldur Omega-3 fitusýrur sem styðja við fósturþroska, lífvænlegri lömb og bætta mjólkurlagni áa
  • Styður við eðlileg efnaskipti og almenna heilsu
  • Stuðlar að betri mótefnasvörun og virkni bólusetninga
  • Getur dregið úr lambadauða og bætt gæði broddmjólkur

 

Hvernig virkar Vet Tech ELITE SHEEP?

Vet Tech ELITE SHEEP veitir markvissa viðbót af vítamínum, snefilefnum og amínósýrum sem styðja við frjósemi áa og hrúta, lífsþrótt og afurðasemi og stuðla að heilbrigðari og lífvænlegri lömbum. Með reglulegri notkun má styðja við betri nýtingu fóðurs og jafnvægi í efnaskiptum hjarðarinnar.

Hvenær er mælt með notkun?

  • 3–4 vikum fyrir tilhleypingar
  • 4 vikum fyrir burð
  • 3 vikum eftir burð
  • Fyrir fé sem sýnir minnkaða afurðasemi
  • Við ormalyfjagjöf eða aðra sníkjudýrameðhöndlun
  • Eftir meðferð dýralæknis

 

Fóðrunarleiðbeiningar

Ær: 10 ml á hver 60 kg lífþunga; 15 ml ef yfir 60 kg
Ær í aðdraganda tilhleypinga: 15 ml, 2–4 vikur fyrir tilhleypingar
Hrútar: 15 ml, 2–4 vikur fyrir tilhleypingar, endurtaka á 2 mánaða fresti eftir þörfum
Lömb: Frá 6 vikna aldri – 3 ml á 10 kg, 5 ml á 20 kg, endurtaka á 2 mánaða fresti

Fyrir lambær: Gefið fyrir tilhleypingar, aftur 4 vikur fyrir burð og síðan á 70–90 daga fresti.

Greiningarþættir: Raki 56%, hráprótein 1,5%, hráfita 8%, hrátrefjar 0%, hráaska 6,5%, natríum 0,1%.

Samsetning: Glýserín, rósmarín.

Aukefni í 1 lítra: Vítamín: A-vítamín (3a672b) 5.500.000 AE, D3-vítamín (3a671) 2.000.000 AE, E-vítamín (3a700) 50.000 AE, K3-vítamín (3a710) 250 mg, B2-vítamín (3a826) 1.500 mg, B6-vítamín (3a831) 750 mg, Níkótínamíð (3a315) 4.000 mg, Pantóþenól (3a842) 1.250 mg, B1-vítamín (3a820) 3.000 mg, Bíótín (3a880) 15.000 μg, Fólínsýra (3a316) 500 mg, B12-vítamín (3a835) 400.000 μg, C-vítamín (3a300) 1.500 mg. Snefilefni: Sink (klósamband sinks af glýsínhýdrati) 6.000 mg, Kóbolt (kóbaltsúlfat) 500 mg, Mangan (klósamband mangans af glýsínhýdrati) 625 mg, Joð (kalíumjoðíð) 5.000 mg, Selen (natríumselenít) 100 mg, Járn (klósamband járns af glýsínhýdrati) 1.000 mg.

Umbúðir

Fæst í 2,5 lítra brúsa sem hentar fyrir inngjafarbyssur.