Karfan er tóm.
Pavo 18Plus Sensitive – Fyrir viðkvæma eldri hesta
Múslífóður fyrir eldri hesta
Pavo 18Plus Sensitive er sérstaklega þróað til að mæta næringarþörfum eldri hesta, einkum þeirra sem eru viðkvæmir fyrir sykri, sterkju og korni. Fóðrið veitir eldri hestum hágæða næringu með auðmeltanlegum hráefnum sem styðja við líkamsástand, meltingu og almenna vellíðan.
Þegar hestar eldast verða breytingar á meltingu og nýtingu næringarefna. Eldri hestar þurfa oft meiri og auðnýtanlegri orku ásamt hágæðaprótínum til að viðhalda holdafari, vöðvum og almennu heilbrigði. Pavo 18Plus Sensitive inniheldur auðmelta trefja- og fitugjafa sem styðja við stöðuga orku og heilbrigt líkamsástand.
Hátt hlutfall gæða prótíns og nauðsynlegra amínósýra hjálpar til við viðhald vöðvamassa og styður við mikilvæga líkamsstarfsemi, þar á meðal ónæmiskerfi og eðlileg efnaskipti.
Styður við ónæmiskerfi og meltingu
Eldri hestar hafa aukna þörf fyrir andoxunarefni þar sem geta líkamans til að vinna gegn sindurefnum minnkar með aldrinum. Pavo 18Plus Sensitive inniheldur blöndu andoxunarefna sem styður við heilbrigði og lífsþrótt eldri hesta.
Fóðrið inniheldur einnig TruEquine™ góðgerlaafleiðu sem samkvæmt rannsóknum styður við meltingarveg, ónæmiskerfi og liðheilsu. Þetta gerir fóðrið sérstaklega hentugt fyrir eldri hesta sem þurfa aukinn stuðning á þessum sviðum.
Kornlaust og með lágt sykurinnihald
Pavo 18Plus Sensitive er án hefðbundins korns, melassa og viðbætts sykurs. Fóðrið er mjög lágt í sykri og sterkju og hentar því vel hestum sem þurfa hóflegt sykur- og sterkjuinnihald í fóðri.
Fóðrunarleiðbeiningar
Ráðlagður dagskammtur er 330 g á hver 100 kg líkamsþyngdar.
Hestur 300 kg: um 1 kg á dag.
Hestur 600 kg: um 2 kg á dag.
Ein full fóðurskófla af Pavo 18Plus Sensitive inniheldur um 1,1 kg.
Fóðrið má gefa þurrt sem múslí eða bleytt sem mauk. Við uppbleytingu skal blanda 1 hluta af Pavo 18Plus Sensitive saman við 1,5 hluta af volgu vatni. Látið standa í um 10 mínútur í volgu vatni eða 20 mínútur í köldu vatni áður en fóðrað er.
Samsetning: Refasmári, sojamjöl (ristað, erfðabreytt), sojaflögur, sólblómafræmjöl, þurrkað eplahrat, heyflögur, hrísgrjónaklíð, sykurrófuhrat (<8% sykur), hörfræolía, hörfræhrat, vallarfoxgras, sojahýði (erfðabreytt), salt, gerafurð (TruEquine™ góðgerlaafleiða), magnesíumoxíð, gulrótarflögur, sólblómafræ, ertuflögur, jurtaolía úr soja, kalksteinn og afurðir úr vinnslu Rosmarinus officinalis og Curcuma longa.
Greiningarþættir: Orka (DE) 10,5 MJ/kg, hráprótein 22%, hrátrefjar 17,4%, hráfita 7,9%, hráaska 10,8%, sykur 5,9%, sterkja 4%, kalsíum 1%, fosfór 0,43%, magnesíum 0,8%, natríum 0,78%, kalíum 1,8%, lýsín 11,5 g, metíónín 3,2 g, þreónín 8,5 g, Omega-3 fitusýrur 19 g og Omega-6 fitusýrur 23 g.
Aukefni pr. kg: A-vítamín 16.500 AE, D3-vítamín 3.000 AE, E-vítamín 356 AE, C-vítamín 250 mg, B1-vítamín 47 mg, B2-vítamín 19 mg, B6-vítamín 13 mg, B12-vítamín 75 mcg, K3-vítamín 5 mg, bíótín 653 mcg, fólínsýra 10 mg, níasínamíð 38 mg og pantóþensýra 27 mg.
Snefilefni pr. kg: kopar 81 mg, joð 1,25 mg, járn 30 mg, mangan 206 mg, selen 1 mg og sink 325 mg.
Magn: 15 kg poki.