Karfan er tóm.
Smákökusamkeppni Kornax
Úrslit: Smákökusamkeppni KORNAX árið 2015
Vinningshafarnir: Andrea Ída Jónsdóttir, 1. sæti (f. miðju), Ástrós Guðjónsdóttir, 2. sæti (t.hægri) og Lilly Aletta Jóhannsdóttir, 3. sæti (t. vinstri).
Smákökusamkeppni KORNAX hefur verið haldin í aðdraganda jólanna síðastliðin ár. Þá keppa áhugabakarar um bestu jóla smákökuna sem inniheldur bæði KORNAX hveiti og súkkulaði frá Nóa Siríusi og hljóta vinningshafarnir glæsileg verðlaun. Frábær þáttaka var í ár og bárust um 150 smákökur. Því var erfitt verkefni framundan hjá dómnefndinni en hana skipuðu Eva Laufey Kjaran matarbloggari og þáttastjórnandi, Stefán Gaukur Rafnsson bakari hjá Kornax, Albert Eiríksson matarbloggari og ástríðukokkur og Auðjón Guðmundsson vörumerkjastjóri hjá Nóa Siríusi.
Dómnefndin að störfum.
Eftir góða yfirferð töldu dómaranir að það sem staðið hafði upp úr í ár var hversu margir lögðu mikinn metnað í smákökugerðina, vandaður frágangur og fagurt útlit einkenndi mjög margar af þeim smákökum sem bárust í keppnina. Að auki fannst þeim mjög gaman að sjá hversu fjölbreyttar kökurnar voru og að keppendur hefðu haft þor til að stíga aðeins út fyrir þægindarammann. Þegar dómnefndin var búin að koma sér saman um hvaða 10 smákökur bæru af hófst mikil og erfið vinna við að raða þeim niður í sæti. Að lokum stóð Andrea Ida Jónsdóttir uppi sem sigurvegari með smákökurnar sínar sem hún kallar Steinakökur.
Það sem dómnefnd hafði að segja um kökurnar hennar var eftirfarandi:
"Mikið jafnvægi í bragði, flott útlit og góð samsetning"
"Ekki of sæt, gott að hafa pekanhnetur með og frágangur til fyrirmyndar"
"Góð hráefni, samsetning góð og eftirbragðið tónaði vel"
"Algjör sæla fyrir bragðlaukana. Stökkur súkkulaðibotn með "krönsí" kókostoppi. Kaka sem ég myndi baka aftur og aftur"
1.sæti: Steinakökur
Ítarlegar upplýsingar um vinningisuppskrftir og aðferð má finna á valmynd hér til vinstri.
Andrea hlaut að launum glæsilega Kitchen Aid hrærivél frá Einari Farestveit, út að borða að verðmæti 30.000 krónur hjá Argentínu steikhús, 30.000 króna inneign í Nettó, þriggja mánaða áskrift að stöð 2, KORNAX hveiti í baksturinn og glæsilega gjafakörfu frá Nóa Siríusi.
Annað sætið hlaut Ástrós Guðjónsdóttir fyrir smákökur hennar sem hún kallar Pipplinga, en eins og nafnið gefur til kynna innihalda kökurnar hennar Pipp súkkulaði frá Nóa Síríus.
Það sem dómaranir höfðu að segja var eftirfarandi:
"Piparmyntubragðið mátulegt, snilld að hafa sítrónu með í uppskriftinni. Það skilaði sér mjög vel"
"Piparmyntusúkkulaði og jarðarber eiga auvitað alltaf vel saman. Frágangur snyrtilegur"
"Passlegt myntubragð, bragðgóður botn og skemmtilegt mótvægi í ávöxtunum"
"Mjúk súkkulaðikaka með piparmyntubragði og keim af ávöxtum, virkilega góð samsetning og góð kaka"
2. sæti: Pipplingar
Ítarlegar upplýsingar um vinningisuppskrftir og aðferð má finna á valmynd hér til vinstri.
Ástrós hlaut að launum Jólahlaðborð fyrir tvo á Argentínu steikhús að andvirði 19.900 krónur, 20.000 króna inneign í Nettó, KORNAX hveiti í baksturinn og glæsilega gjafakörfu frá Nóa Siríusi.
Þriðja sætið hlaut Lilly Aletta Jóhannsdóttir. Lilly kallar smákökurnar sínar Heslihnetu karamellu kökur en það sem gerir smákökur hennar skemmtilegar er heimalagaða karamellan sem er mjög ljúffeng.
Dómaranir höfðu eftirfarandi að segja:
"Karamellan náði mér við fyrsta bita. Ömmusælan fylgdi kökunni"
"Heima er best, hlýleg og minnir mig á ömmu mína"
"Skemmtileg samsetning, flott útlit og hæfilega bragðmikil karamella"
"Hlýleg smákaka sem maður fær ekki nóg af"
3.sæti: Heslihnetu karamellu kökur
Ítarlegar upplýsingar um vinningisuppskrftir og aðferð má finna á valmynd hér til vinstri.
Lilly vann 10.000 króna inneign í Nettó, KORNAX hveiti í baksturinn og glæsilega gjafakörfau frá Nóa Siríusi.
KORNAX, Einar Farestveit, Nói Síríus, Argentína steikhús og Nettó óska öllum vinningshöfum innilega til hamingju.
KORNAX vill koma á framfæri miklu þakklæti til allra þeirra sem tóku þátt og hlökkum við mikið til þess að halda keppnina aftur að ári, því hvetjum við alla til þess að halda áfram að æfa sig fyrir jólin og taka aftur þátt að ári.
Að auki viljum við koma á framfæri þakklæti til dómnefndarinnar sem vann virkilega gott starf sem og til okkar samstarfsaðila sem lögðu til glæsilegar gjafir.