Verslun Líflands opnaði á nýjum stað í Borgarnesi

Föstudaginn 11. desember opnaði  Lífland verslun á nýjum stað í Borgarnesi, við Digranesgötu 6.

Ekki var annað að sjá en að Borgfirðingar tækju þessari nýju verslun vel og  gaman að sjá hve margir kíktu við á opnunardaginn.
Í nýju versluninni verður boðið upp á sömu góðu þjónustuna en þó mun vöruúrval aukast til muna. Má þar nefna aukið úrval af útivistarfatnaði bæði fyrir börn og fullorðna frá þekktum merkjum eins og Kari Traa, Reima, Kidka, Tenson og fleirum  en einnig hefur búrekstrarvöru, bætiefnum og fóðri verið gert hærra undir höfði með auknu plássi, bættu aðgengi og meira úrvali.

Ekki má svo gleyma gæludýrunum því í Líflandi færðu hágæða fóður frá Arion fyrir hunda og ketti ásamt góðu úrvali af gæludýravörum.

Við hlökkum til að sjá ykkur yfir aðventuna á nýjum stað.

Starfsfólk Líflands Borgarnesi.

 


Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstabraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5 | 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Verslun Selfossi | Austurvegur 69 | 800 Selfoss | Sími: 540 1165
Skrifstofa  |  Brúarvogur 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is

Opnunartímar verslana