Fara í efni

Innköllun á Kanilsnúðaköku frá Kornax

Lífland ehf. hefur ákveðið í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur að innkalla Kanilsnúðaköku frá Kornax.

Ástæða innköllunar: Aðskotahlutur (plaststykki) fannst í kanilsykurspoka sem fylgir með Kanilsnúðaköku.

Upplýsingar um vöru sem er innkölluð

Vörumerki: Kornax

Kanilsnúðakaka frá Kornax
Best fyrir: 18.08.2026
Lotunúmer: 15012534403

Kanilsnúðakaka frá Kornax
Best fyrir: 10.11.2026
Lotunúmer: 15012546102

Geymsluskilyrði: Þurrvara
Framleiðandi: Valsemøllen A/S, Esbjerg. Framleitt fyrir Lífland ehf. á Íslandi
Nettóþyng: 475g
Strikamerki: 5 690453 977919

Dreifingaraðilar: Krónan, Bónus, Hagkaup, Stórkaup, Fjarðarkaup, IKEA, Kaupfélag vestur Húnvetninga, Kaupfélag Skagfirðinga, Hlíðarkaup, Melabúðin, Verslun Einars Ólafssonar, Hraðbúðin Hellissandi, Víkurval og Fjölval Smáralind.

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki. Vörunni má farga eða fá nýja vöru í verslun Líflands á Korputorgi í Reykjavík. Nánari upplýsingar um innköllunina veitir Lífland í síma 540-1100 eða netfang lifland@lifland.is.