Áburður

Fáðu Líf í tún og akra

Hjá Líflandi finnur þú gott úrval áburðar fyrir íslenskar aðstæður hvort sem er til túnræktar, í flög og nýræktir eða á kornakurinn. 

Áburðarverðskrá Líflands 2019Smelltu hér fyrir áburðarverðskrá 2024

Nýjungar í úrvali Líflands 2024

Heysýnagreiningar vetrarins hafa gefið tilefni til að ætla að sumstaðar sé of mikið selen í næringarefnahringrás búa, þ.e. selenið sé að safnast upp í mykju og jarðvegi og leiða til þess að selen sé að mælast óæskilega hátt í gróffóðri, jafnvel yfir eitrunarmörkum. Af þessum sökum hefur tegundum án selens verið fjölgað og er nú að finna tvígildan NP 26-10 og þrígildan NPK 20-10-10 í úrvalinu. Einnig er boðið upp á léttþrígildan NPK 22-3-3 LYSTAUKI með viðbættu salti sem og þrígildan NPK 27-6-6 án selens. 

Full þörf á að panta snemma og tryggja sér áburð

Við hvetjum bændur til að huga fyrr að sínum áburðarkaupum en ella og tryggja sér það magn og tegundir sem óskað er eftir. Til og með 20. febrúar 2024 verður hægt að ábyrgjast framboð allra tegunda en eftir það kann úrvalið að skerðast.

Eins og áður er allt úrvalið aðgengilegt á Jörð.is og hægt að vinna áburðaráætlun með Líf áburði Líflands.

Framleiðsla Líf áburðar

Líf áburðurinn er að mestu fjölkorna vara sem framleidd er af Glasson Fertilizers í Bretlandi og uppfyllir evrópska staðla. Líf áburðurinn er framleiddur í blöndunarstöð Glasson í Montrose í Skotlandi þaðan sem honum er jafnframt skipað út. Glasson rekur að auki blöndunarstöðvar í Lancaster, Birkenhead, Goole og Howden. Glasson Fertilizers er dótturfélag bresku landbúnaðarsamstæðunnar Wynnstay Group sem rekur sögu sína aftur til ársins 1917. Glasson Fertilizers hefur verið vaxandi á sviði fjölkorna blöndunar og er í dag annar stærsti aðilinn á breskum markaði og í stöðugum vexti. 

Um vöruna:
  • Lagt er upp úr að tryggja gott úrval selenbættrar vörur auk þess sem lagt er upp með að hafa gott kalsíumhlutfall í sem flestum tegundum til að draga úr sýringaráhrifum. 
  • Sterkbyggðir og þolgóðir stórsekkir með þykkum innri poka. skv. BS EN ISO 9001-2000 staðli sem hafa sannað sig við íslenskar aðstæður. 
  • Allur áburður húðaður með paraffínolíu til að auka flæði og minnka líkur á samloðun
  • Áburðurinn er framleiddur skv. staðli um umhverfisstjórnun ISO14001
Leitið tilboða

Endilega kynnið ykkur LÍF úrvalið og verið í sambandi við sölumenn okkar í fodur@lifland.is, í s. 540-1100 eða leitið til starfsmanna okkar í verslunum á landsbyggðinni, þ.e. Hvolsvelli, Selfossi, Borgarnesi, Blönduósi og Akureyri.  

 

Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstubraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5| 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Verslun Selfossi | Austurvegur 69 | 800 Selfoss | Sími: 540 1165
Skrifstofa  |  Brúarvogi 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is

Opnunartímar verslana