Hestafóður

Pavo Ease&Excel
Pavo Ease&Excel

Pavo Ease&Excel

Eiginleikar:
Vörunúmer BTR10074

Ease&Excel er góðgerlabætt múslífóður fyrir hesta, sem byggir á nýjustu þróun á sviði hestafóðrunar. Fóðrinu er ætlað að koma góðu jafnvægi á sýrustig í maga og hentar því sérlega vel fyrir keppnishross og hesta sem eru undir miklu þjálfunarálagi.

Pavo Ease&Excel - 7.890 kr.
Verðmeð VSK
7.890 kr.
Verðán VSK 6.363 kr.

Fóðrið er orkuríkt, með hátt hlutfall meltanlegs trénis en jafnframt lágt sykurinnihald

Protexin góðgerlar

Pavo Ease&Excel inniheldur Protexin, góðgerla og góðgerlabæti, sem ætlað er að styðja við starfsemi smágirnis, botnlanga og víðgirnis. Protexin er einstæð blanda af náttúrulegum efnum sem draga úr sýringu. Fóðrið inniheldur einnig betaglúkana, arabískt gúmmí, góðgerla og góðgerlabætandi efni. Meðal efna sem draga úr sýringu eru kalsíum og magnesíum. Þessi efni hlutleysa sýru á meðan arabískt gúmmí styður við almennt heilbrigði meltingarvegar og verndar veggi hans. Protexin leggur til góðgerla og góðgerlabætandi efni sem samhliða öðrum þáttum styðja viðgang hagstæðra baktería í botnlanga og víðgirni, og leggur þar með grunninn fyrir heilbrigða iðraflóru.

Helstu eiginleikar

  • Lystugt og trénisríkt múslífóður fyrir hesta í meðal og mikilli þjálfun
  • Orkuríkt fóður - orka úr meltanlegu tréni og fitum - ekki sykri
  • Mjög lágt sykurinnihald (6%) og sterkjuinnihald (8%)
  • Hágæða prótein sem stuðla að skjótari endurheimt eftir miklar æfingar
  • Inniheldur Protexin góðgerla sem styðja við bætt heilbrigði meltingarvegar

Hvaða hestar hafa gagn af Pavo Ease&Excel?

  • Hestar sem eru viðkvæmir í maga
  • Hestar sem þjást af lystarleysi
  • Taugaveikluð hross og hestar með streitueinkenni
  • Hestar sem þurfa ábót til endurheimtar eftir miklar æfingar

Fóðrun

Samhliða Pavo Ease&Excel skal tryggja aðgengi að góðu gróffóðri til að ná hámarksárangri. Miðið við að þurrefni gróffóðurs sé a.m.k. 1,5% af lífþunga og deilið því magni á eins margar gjafir á sólarhring og hægt er. Ávallt skal tryggja aðgengi að vatni.

Ráðlagður skammtur/dag fyrir hest á hver 100 kg lífþunga:

Í miðlungsmikilli brúkun: 0,45 kg
Í mikilli brúkun: 0,6 kg
Í keppnis- og kynbótaþjálfun: 1,0 kg

Innihald: Sojahýði*, hafraklíð, refasmári, sojaolía*, sykurrófuhrat, hveiti, sojabaunir (pressaðar og ristaðar)*, reyrmelassi, hörfræ, hveitifóður, díkalsíumfosfat, kalsíumkarbónat, natríumklóríð, Protexin góðgerlar (Beta-glúkanar (0,15 mg/kg), magnesíum karbónat, frúktó-ólígósakkaríð, akasía, Saccharomyces cerevisiae NCYS Sc47 (1 x109 cfu/kg)).

Greiningarþættir: Orka 13 MJ/kg. Hráprótein 13,0%, hráfita 10,5%, hrátréni 18,0%, hráaska 8,0%, sykur 6,0%, sterkja 8%, kalsíum 1,2%, fosfór 0,6%, natríum 0,3%, magnesíum 0,4%. 

Aukefni (á kg): Vítamín: A-vítamín (3a603) 13.000 AE, D3-vítamín (3a671) 1.300 AE, B1-vítamín 24 mg, B2 vítamín, 12 mg, B6-vítamín, 2 mg, B12-vítamín 70 μg, C-vítamín 180 mg, E-vítamín (3a700) 375 mg, kólín 390 mg, fólín 7 mg, níasín 26 mg.

Snefilefni: Kopar (3b405, 3b406) 65 mg, járn (3b103) 65 mg, sink (3b603, 3b605) 150 mg, mangan (3b502, 3b505) 55 mg, kóbalt (3b304) 1,0 mg, selen (3b8.11) 0,6 mg, joð (3b202) 1,2 mg.

*Framleitt úr erfðabreyttum sojabaunum.

Tengdar vörur

Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.

Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstubraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5| 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Verslun Selfossi | Austurvegur 69 | 800 Selfoss | Sími: 540 1165
Skrifstofa  |  Brúarvogi 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is

Opnunartímar verslana