Fyrir rafhlöðu/rafgeymi

Hotline Super Hawk spennir
Hotline Super Hawk spennir

Hotline Super Hawk spennir

Vörunúmer HO47P300

Hotline Super Hawk 9 og 12V rafgirðingaspennir. Super Hawk spennirinn er hannaður fyrir randbeitingu nautgripa og fyrir hestagirðingar.

Verðmeð VSK
44.990 kr.
Verðán VSK 36.282 kr.

Hotline P300 Super Hawk tekur einnota 9V, 90 Ah rafhlöðu sem endist c.a 11 vikur á fullum afköstum og 12 vikur með sparrofa, miðað við að spennirinn sé í notkun 24 tíma á dag. Einnig er hægt að nota við hann 12V geymi. 

Eins og með aðrar rafstöðvar er góð jarðtenging grundvöllurinn fyrir því að straumur komi á girðinguna. Ráðlagt er að koma járnstöng (helst galvaniseraðri) uþb meter ofan í jörðina til að fá góða jarðtengingu. Í sumum tilvikum er ein jarðtenging ekki nóg heldur þarf einnig að jarðtengja girðinguna á einhverra hundruð metra fresti til að ná á hana góðum straumi. 

Helstu kostir:

  • Spennirinn notar 9V 90Ah alkaline rafhlöðu (fylgir ekki) eða 12V geymi (fylgir ekki).
  • Hefur sparrofa til að lengja líftíma rafhlöðunnar.
  • Mjög bjart LED gaumljós
  • Snúrur með klóm fyrir girðingu og jarðtengingu.
  • Hentar vel fyrir minni hrossagirðingar og fyrir randbeit.
  • Hentar fyrir allt að 1,5km girðingu (miðað við einn streng).

Orkugjafi: 9V + 12V
Orkunotkun: 25mA eða 30mA
Gerð orkugjafa: 1 x 90V 90 Ah rafhlaða eða 12V geymir
Hámarks drægni: 1,5 km
Orka út Joules: 0,12J og 0,18J
Volt út í girðingu: 8.000/9.500
Volt við mikla útleiðslu: 1.900/2.400
Endingartími rafhlöðu: 11 vikur með 90 Ah rafhlöðu

Þyngd 3.3kg

Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.

Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstubraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5| 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Verslun Selfossi | Austurvegur 69 | 800 Selfoss | Sími: 540 1165
Skrifstofa  |  Brúarvogi 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is

Opnunartímar verslana