Karfan er tóm.
Super Boots bjóða upp á nýja nálgun á hlífar fyrir íslenska hesta. Þróaðar með ríka áherslu á virkni og öryggi hestsins.
Þær eru með innbyggðri vörn úr mjúku gúmmíi sem aðgreinir þær skýrt frá öðrum hlífum á markaðnum.
Vörnin er fest með punktfestingu með tvöföldu pinnakerfi (klemmum) aftan á hlífinni, sem gerir henni kleift að hreyfast náttúrulega með hreyfingum hestsins.
Vörnin situr tryggilega á sínum stað en hreyfist sjálfstætt frá hlífinni. Útkoman kemur vel út og verndar hófinn og dregyr úr hættu á högg og sparkáverkum. Engin þörf er að nota vafninga undir hlífarnar.
Super Boots eru hagnýt, endingargóð og hestvæn lausn sem er bæði auðveld í notkun og þægileg fyrir hestinn.
Hvert par kemur í stílhreinum burðarpoka.
Stærðir (þyngd):
145 g, 160 g, 180 g, 200 g, 220 g, 240 g
Þvottaleiðbeiningar:
Hlífar og vörnina má þvo í þvottavél. Ólar og pinnar skulu handþvegnir í ylvolgu vatni með mildri sápu.