Fara í efni
Vörunúmer: MLFP8119

Super Phos 500 ml

Verðm/vsk
1.890 kr.

Super Phos er fóðurbætiefni með fosfór og kalsíum ætlað fyrir mjólkurkýr og ær við burð. Það er kjörið sem viðbótarskammtur fosfórs og kalks þegar þörfin er mest um og eftir burð og þegar hætta er á doðavandamálum. 

Varan er ekki til í netverslun okkar eins og er en getur verið til í öðrum verslunum eða á miðlager okkar. Frekari upplýsingar fást hjá söluráðgjafa í síma 540-1100.
Verðm/vsk
1.890 kr.

Super Phos er fóðurbætiefni með fosfór og kalsíum ætlað fyrir mjólkurkýr og ær við burð. Það er kjörið sem viðbótarskammtur fosfórs og kalks þegar þörfin er mest um og eftir burð og þegar hætta er á doðatengdum vandamálum. Um helmingur doðakúa sem eiga erfitt með að standa upp glíma við of lág gildi fosfórs og kalsíums. 

Hver flaska leggur til:

  • 45 g fosfórs samsett út auðuppteknum og hæguppteknum fosfór
  • 55 g kalsíums samsett úr auðuppteknu og hæguppteknu kalki
  • D3-vítamín sem styður við upptöku kalks og fosfórs

Fóðrunarleiðbeiningar: Gefið um munn með sprautu eða búnaði til að hella/sprauta upp í gripi.

Kýr: Heil 500 ml flaska hellt upp í grip. Gefa má aðra flösku 10 tímum síðar.

Ær: 60 ml gefin með sprautu um munn

Lömb: 30 ml gefin með sprautu um munn 

Greiningarþættir: Kalsíum 10%, fosfór 9%, natríum 0%, magnesíum 0,4%.

Samsetning: Díkalsíumfosfat, mónónatríumfosfat, magnesíumhýdroxíð. Aukefni (pr. lítra): Vítamín:D3-vítamín (3a671) 20.000 AE.   

Magn: 500 ml