Lífland óskar eftir starfsmanni í verslun Líflands á Lynghálsi.
Vinnutími er frá kl. 10–18 alla virka daga og frá kl. 10-15 á laugardögum. Starfsmaður þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Starfssvið
- Ráðgjöf og sala til viðskiptavina
- Framstillingar í verslun
- Almenn verslunarstörf
Hæfniskröfur
- Reynsla af sölumennsku/verslunarstörfum
- Þekking á íslenskum landbúnaði og hestamennsku er kostur
- Þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum
- Lyftararéttindi eru kostur
- Góð almenn tölvuþekking
Nánari upplýsingar um starfið veitir Rannveig Hrólfsdóttir mannauðsstjóri í tölvupósti, rannveig@lifland.is
Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að senda umsókn og ferilskrá á atvinna@lifland.is merkt „Starfsmaður í verslun Lynghálsi”.
Við hvetjum bæði konur og karla til að sækja um.