Haustið er uppskerutími og tími til að draga björg í bú. Fylgifiskur haustsins eru leitir, réttir og viðeigandi fjárrag og í kjölfarið þarf að huga að úrvinnslu afurðanna sem sumarið hefur gefið af sér. Í verslunum okkar getur þú fundið úrval vinnsluvöru fyrir sláturtíðina en einnig er úrvalið allt aðgengilegt í vefverslun okkar.
Hjá okkur má finna allt mögulegt til kjötvinnslu, sláturgerðar og pökkunar á kjöti og sláturafurðum:
- Sláturkeppir og sláturlengjur
- Bjúgnaplast og hrossabjúgnagarnir
- Sláturnælur og sláturgarn
- Kjötnet sem hentar ýmist til reykingar og suðu
- Salt, nítrítsalt, pækilmælar og krydd
- Vakúmpokar í rúllum og föstum stærðum ásamt vakúmpökkunarvél
- Plastfötur og tunnur fyrir matvæli
- Hnífar, kjötkrókar, brýni, brýnistál og önnur áhöld
Sjón er sögu ríkari. Kynntu þér úrvalið í verslunum okkar eða í vefverslun Líflands.