Meistaradeild Líflands og æskunnar

Lífland er stoltur bakhjarl Meistaradeildar Líflands og æskunnar.

Deildin er vettvangur til að skapa keppendum í hestaíþróttum á aldrinum 13-17 ára grundvöll til að þróast sem keppnisfólk.

Deildin lengir keppnistímabilið og gerir kröfur til þjálfunar, hestakosts og reiðmennsku, um leið og umgjörðin er glæsileg og hæfir tilefninu.

Það er óhætt að segja að lokamót Meistaradeildar Líflands og æskunnar hafi verið skemmtilegt og spennandi. Á mótinu var keppt í tveimur greinum og því fullt af stigum í pottinum fyrir bæðin liðin og einstaklingana í stigasöfnuninn.

Stigahæsti knapi vetrarins varð Ragnar Snær Viðarsson í Fáki og liði Hrímnis/Hest.is, með 40,5 stig. Í öðru sæti varð Matthías Sigurðsson í Fáki og sömuleiðis í liði Hrímnis/Hest.is með 38 stig og þriðja varð Guðný Dís Jónsdóttir í Spretti og liði Hofsstaða/Ellerts Skúlasonar með 36 stig.

Stigasöfnun liða var einnig mjög spennandi og á endanum stóð lið Hrímnis/Hest.is uppi sem sigurvegari vetrarins með 351,5 stig, í öðru sæti lið Hofsstaða/Ellerts Skúlasonar með 324,5 stig og þriðja liðið varð lið Ragnheiðarstaða með 276,5 stig.

Ingibjörg Ásta Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri sölu og markaðssviðs Líflands afhenti keppendum verðlaunin. Lífland óskar vinningshöfum og öllum þátttakendum til hamingju með glæsilega frammistöðu.

Meistaradeild Líflands og æskunnarMeistaradeild Líflands og æskunnarMeistaradeild Líflands og æskunnarMeistaradeild Líflands og æskunnarMeistaradeild Líflands og æskunnarMeistaradeild Líflands og æskunnarMeistaradeild Líflands og æskunnar


Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstabraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5 | 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Verslun Selfossi | Austurvegur 69 | 800 Selfoss | Sími: 540 1165
Skrifstofa  |  Brúarvogur 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is

Opnunartímar verslana