Lífland hefur undanfarin ár veitt styrk til góðgerðarmála í desember í stað þess að senda jólakort til viðskiptavina. Ákveðið hefur verið að veita Umhyggju - Félagi langveikra barna Jólastyrk Líflands fjórða árið í röð.
Hjá Umhyggju er unnið gott starf í þágu barna sem stríða við langvarandi veikindi. Þar starfa foreldrar langveikra barna og fagfólk innan heilbrigðiskerfisins. Við vonum að styrkurinn komi sér vel og óskum þeim sem og landsmönnum öllum gleðilegra jóla.