Fara í efni

Smáköku­samkeppni KORNAX

Smákökusamkeppni Kornax 2026

Kornax og Góa

Smákökusamkeppni Kornax og Góu 2026 

Smákökusamkeppni Kornax þekkja orðið flestir og á mörgum heimilum hefur skapast sú hefð að taka þátt í henni á hverju ári í aðdraganda jólanna. Líkt og áður verða vegleg verðlaun veitt fyrir þrjár bestu smákökurnar og að auki fá allir sem senda inn smákökur í keppnina glaðning frá Kornax og Góu.

Öllum áhugabökurum, stórum sem smáum er heimil þátttaka.

Keppnistilhögun:

  • Allar kökurnar verða að innihalda Kornax hveiti og vöru frá Góu, en það geta verið vörur frá Góu, Lindu, OmNom og Appolo. 
  • Dæmt er eftir bragði, áferð, lögun og lit og hvort sýnishorn eru einsleit og vel unnin.
  • Miðað er við að kökurnar séu ekki stærri en 5 cm í þvermál.
  • Senda þarf um það bil 15 smákökur merktar með dulnefni.  Rétt nafn, símanúmer og uppskrift er látið fylgja með i lokuðu umslagi merktu sama dulnefni.
  • Allir sem senda inn kökur í keppnina fá glaðning frá Kornax og Góu.


Kökunum þarf að skila inn á skrifstofu Kornax, Reykjavíkurvegi 74, 2. hæð (gengið inn bakatil), fyrir kl. 16:00 miðvikudaginn 25. nóvember. 

Veitt eru vegleg verðlaun fyrir þrjú fyrstu sætin frá okkar frábæru samstarfsaðilum

1. Sæti

  • KitchenAid hrærivél (Artisan Plus) frá Raflandi.
  • 50 þúsund króna gjafabréf í matvöruverslun
  • Gisting með morgunverði á Hótel Örk fyrir tvo
  • Gjafabréf í Reykjaböðin fyrir tvo
  • Gjafabréf fyrir tvo á veitingastaðinn Apótekið Austurstræti í High Tea
  • Glæsileg gjafakarfa frá Bio Bú
  • Glæsileg gjafakarfa frá Góu
  • Gjafabréf frá Skúbb ísgerð
  • Hamingjuegg í baksturinn frá Nesbú
  • Kornax hveiti og kökumix í baksturinn

2. Sæti

  • 30 þúsund króna gjafabréf í matvöruverslun
  • Glæsileg gjafakarfa frá Bio Bú
  • Glæsileg gjafakarfa frá Góu
  • Gjafabréf frá Skúbb ísgerð
  • Hamingjuegg í baksturinn frá Nesbú
  • Kornax hveiti og kökumix í baksturinn

3. Sæti

  • 20 þúsund króna gjafabréf í matvöruverslun
  • Glæsileg gjafakarfa frá Bio Bú
  • Glæsileg gjafakarfa frá Góu
  • Gjafabréf frá Skúbb ísgerð
  • Hamingjuegg í baksturinn frá Nesbú
  • Kornax hveiti og kökumix í baksturinn


Dómarar :

Kolbrún Haraldsdóttir - Góa
Guðmundur Helgi Harðarson - Kornax/Lífland
Dísa Sigurðardóttir - Rafland
Jón Hjörtur Hjartarson  & Eygló Ósk Jónsdóttir sigurvegarar síðasta árs
Mari Järsk hlaupadrottning og áhrifavaldur

 Góða skemmtun!

Hveitipokar