Fara í efni

Sáðvara

Í frjóa jörð...

Lífland hefur um langt árabil verið í fararbroddi þegar kemur að úrvali sáðvöru sem gefið hefur góða raun við íslenskar aðstæður. Við bjóðum upp á gæðavöru, m.a. frá Lantmännen í Svíþjóð og Boreal í Finnlandi en þessi fyrirtæki eru leiðandi á sínum sviðum og hafa að markvissum kynbótum á nytjaplöntum fyrir norðlægar aðstæður. Lífland hefur notið góðs af samstarfi við sérfræðinga þessara fyrirtækja við þróun á vöruúrvalinu. Auk þess tekur sáðvöruúrval Líflands að stóru leyti mið af þeim yrkjum sem gefið hafa besta raun í yrkjatilraunum Landbúnaðarháskóla Íslands og hefur fyrirtækið átt gott samstarf við helstu fræðimenn landsins á sviði jarðræktartilrauna. Eins hefur verið leitast eftir því að eiga gott samstarf við bændur sem hafa hug á því að reyna ræktun nýrra tegunda og yrkja.

Gott yfirlit yfir vöruúrvalið

Líkt og mörg undangengin ár sendum við nú út yfirgripsmikinn vörulista yfir sáðvörur fyrir bændur. Nú hefur ítarlegri umfjöllun um lykilvöruflokkana og helstu eiginleika þeirra verið bætt við og ætti það að auðvelda valið.

Kynntu þér landsins mesta úrval af sáðvöru í nýjum og efnismiklum sáðvörulista Líflands fyrir vorið 2026!

>> SÁÐVÖRULISTI 2026

Meiri upplýsingar - Auðveldara val

Í vefverslun okkar höfum við nú endurbætt verulega allar vörulýsingar þeirra yrkja sem við bjóðum upp, byggt á þeim
upplýsingum sem fyrir hendi eru úr innlendum og erlendum rannsóknum, á ásamt því sem stórum hluta úrvalsins
fylgja ræktunarleiðbeiningar.

Við viljum með þessari auknu upplýsingamiðlun styðja enn frekar við viðskiptavini okkar og gera bændum kleyft að
taka betri ákvarðanir um sáðvörukaup sín.

>> SKOÐA SÁÐVÖRUÚRVAL Í VEFVERSLUN

Endursöluaðilar

Lífland er í góðu samstarfi við endursöluaðila á landsbyggðinni og hvetjum við viðskiptavini á þessum svæðum til að hafa samband við þá:

  • Húnaþing vestra: Kaupfélag V-Húnvetninga (KVH), Hvammstanga
  • Austurland: Verkstæði Svans, Finnsstöðum
  • Vesturland: Kaupfélag Borgfirðinga (KB), Borgarnesi

 

Leitaðu til starfsmanna í verslunum okkar eða til söludeildar og fáðu tilboð og ráðleggingar um val á réttu sáðvörunni í s. 540-1100, með því að leita beint til verslana á landsbyggðinni eða í sala@lifland.is.