Ábreiður hestar

BoT flísábreiða Supreme, fyrir háls
BoT flísábreiða Supreme, fyrir háls

BoT flísábreiða Supreme, fyrir háls

Vörunúmer BOT21419025

Back on Track flísábreiða með D hringjum til að festa hálshluta. 125cm.

 

Verðmeð VSK
34.990 kr.
Verðán VSK 28.218 kr.

Back on Track® Supreme flísábreiðan er fóðruð með hinu einstaka Welltex(TM) efni sem er polypropylene efni með íofnum keramikögnum og ytra byrði ábreiðunnar er polyester. Ábreiðan er sér styrkt í kring um hálsinn og hefur mjúkt flísefni í kring um herðar, til að koma í veg fyrir nuddsár. Til að koma í veg fyrir að hún teygist um of er styrking saumuð eftir bakinu endilöngu. Í ofanálag er ábreiðan með tvöfalda festingu á brjósti og tvær ólar undir kvið. Taglhlíf er á ábreiðunni, með streng undir taglið. Á þessari ábreiðu eru auka D hringir til að festa á hálshluta, sjá vörunúmer BOT22160035.

Þessa ábreiðu er tilvalið að nota á hest á meðan hann kólnar niður eftir átök eða sem létta ferðaábreiðu. Einnig hentar hún vel til að nota sem upphitunarábreiðu, til að hita upp vöðva fyrir hreyfingu eða keppni og að sama skapi má nota hana til eftir hreyfingu/keppni til að auðvelda endurheimt og minnka líkur á stirðleika og harðsperrum. 

Fóður: 100% polypropylene með keramiki, Ytra byrði: 100% polyester

Má þvo á 30°C á kerfi fyrir viðkvæman þvott.

Hið einstaka Welltex keramikefni Back on Track hefur þann eiginleika að endurkasta hita. Efnið er samvirkni fornrar kínverskrar reynslu og nútíma tækni í hönnun vefnaðar. Þessi aðferð við linun sársauka var þróuð í Kína til forna þar sem notaðir voru hitaðir marmarasteinar á sára vöðva. Kínverjar notuðu sérstakan marmara með sérstökum málmoxíðum sem gerðu það að verkum að þeir linuðu sársauka. Málmoxíð endurkasta líkamshita og örva þar með blóðflæði og frumuvirkni. Vinsældir og efturspurn eftir þessum sérstaka marmara jókst hratt og hvatti kínverja til að líta til annarra leirtegunda sem einnig innihalda sömu málmoxíð. Þeir bökuðu þennan leir og formuðu í keramikplötur sem þeir gátu notað á svipaðan hátt og marmarasteinana. Með tímanum fundu þeir þær leirtegundir sem höfðu sömu áhrif og marmarinn. Þessar plötur hafa verið notaðar til að bræða fínt keramikduft í þræðina sem svo eru notaðir til að vefa Welltex efnið. Þetta þýðir að efnið hefur sömu áhrif og keramikplöturnar.

Vel skrásett er að innrauði hitinn eykur blóðflæði. Aukið blóðflæði minnktar vöðvaspennu og hefur fyrirbyggjandi áhrif. Notkun Back on Track varanna fyrir þjálfun og keppni hefur sannað gildi sitt sem mikilvægur liður í að koma í veg fyrir meiðsli. Mannfólk og dýr geisla líkamshita bæði við hvíld og hreyfingu og því má nota Back on Track vörurnar bæði á nóttunni og við þjálfun. Í hvíld er hitageislunin þó minni en þegar líkaminn er í vinnu. Þess vegna er er árangursríkast að nota vörurnar, bæði við hvíld og hreyfingu, á þau svæði sem útsettust eru fyrir meiðslum.  

Hvernig skal hefja notkun Back on Track vörunnar?

Það er mikilvægt að byrja hægt að nota vörurnar til þess að líkaminn venjist áhrifum þeirra. Notið vörurnar í mesta lagi í 4 tíma fyrstu 2 – 3 dagana. Ástæðan fyrir þessu er að sumir einstaklingar finna mikið fyrir áhrifum efnisins og geta fundið fyrir óþægindum. Í hestum og hundum geta óþægindin komið fram sem bólga. Þetta gerist vegna aukins blóðflæðis og er til merkis um að keramik efnið virkar vel á vöðvana. Fyrstu óþægindi eða bólga gætu gert vart við sig eftir aðeins nokkurra klukkustunda notkun. Hætta skal notkun vörunnar það sem eftir lifir þess dags og nota hana í smá skömmtum næstu daga til að líkaminn venjist áhrifunum.

Eftir kynningartímann má auka notkunartímann til allt að 8 tíma á dag og helst lengur. Jákvæð áhrif á stífa vöðva og liði sjást jafnvel eftir svo lítið sem klukkutíma notkun. Langvinnari vandamál geta þurft nokkurra daga notkun, allt að 10-20 daga, áður en ákjósanlegur árangur næst. Svo skal nota vörurnar eins og þér finnst virka best. Gott getur verið að nota vörurnar í einhven tíma og taka svo pásu, eða minnka hversdagslega notkun við hreyfingu eða til dæmis á nóttunni.

Tengdar vörur

Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.

Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstubraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5| 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Verslun Selfossi | Austurvegur 69 | 800 Selfoss | Sími: 540 1165
Skrifstofa  |  Brúarvogi 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is

Opnunartímar verslana