Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir sigurvegari í slaktaumatölti Meistaradeildar Líflands í hestaíþróttum.
Keppni í slaktaumatölti T2 í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum fór fram á Ingólfshvoli í Ölfusi í kvöld (11. febrúar). Eins og í fyrri keppni var mótið haldið án áhorfenda en sýnt var beint á RÚV2 og streymt var til erlendra áhorfenda á AlendisTV.
Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir og hestur hennar Óskar frá Breiðstöðum voru með nokkuð örugga forystu eftir forkeppni með einkunnina 7,97. Þau enduðu einnig sem sigurvegarar í úrslitum með einkunnina 8,20
Árni Björn og Katla frá Hemlu hækkuðu sig í úrslitum í annað sætið úr því sjötta frá forkeppni en Jakob á Kopar frá Fákshólum komu fast á hæla þeirra og enduðu í því þriðja.
Lið Top Reiter hlaut liðaplattann en liðið var með tvo knapa í A-úrslitum, þá Árna Björn Pálsson og Teit Árnason. Eftir gott gengi í slaktaumatöltinu hækkaði liðið sig líka úr 5. sæti í liðakeppninni yfir í 2. sætið með 92 stig. En efst í liðakeppninni er lið Hestvits / Árbakka með 105 stig og í því þriðja er lið Hjarðartúns með 85,5 stig.
Efstur í einstaklingskeppninni er Jakob Svavar Sigurðsson úr liði Hjarðartúns með 18 stig en saman í öðru sæti eru þau Jóhanna Margrét Snorradóttir úr liði Hestvits / Árbakka og Árni Björn Pálsson úr liði Top Reiter, bæði með 15 stig.
Niðurstöður úrslita voru eftirfarandi:
- Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir - Óskar frá Breiðstöðum - Ganghestar / Margrétarhof 8,2
- Árni Björn Pálsson - Katla frá Hemlu II - Top Reiter 7,87
- Jakob Svavar Sigurðsson - Kopar frá Fákshólum – Hjarðartún 7,83
- Jóhanna Margrét Snorradóttir - Bárður frá Melabergi - Hestvit / Árbakki 7,75
- Teitur Árnason - Brúney frá Grafarkoti - Top Reiter 7,63
- Helga Una Björnsdóttir - Þoka frá Hamarsey – Hjarðartún 7,2
Niðurstöður úr forkeppni:
Sæti |
Keppandi |
Heildareinkunn |
1 |
Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir / Óskar frá Breiðstöðum |
7,97 |
2-3 |
Jóhanna Margrét Snorradóttir / Bárður frá Melabergi |
7,80 |
2-3 |
Teitur Árnason / Brúney frá Grafarkoti |
7,80 |
4 |
Jakob Svavar Sigurðsson / Kopar frá Fákshólum |
7,63 |
5 |
Helga Una Björnsdóttir / Þoka frá Hamarsey |
7,57 |
6 |
Árni Björn Pálsson / Katla frá Hemlu II |
7,47 |
7-8 |
Elin Holst / Frami frá Ketilsstöðum |
7,43 |
7-8 |
Hinrik Bragason / Kveikur frá Hrísdal |
7,43 |
9 |
Davíð Jónsson / Ólína frá Skeiðvöllum |
7,33 |
10 |
Matthías Leó Matthíasson / Doðrantur frá Vakurstöðum |
7,23 |
11 |
Viðar Ingólfsson / Skál frá Skör |
7,20 |
12 |
Siguroddur Pétursson / Eldborg frá Haukatungu Syðri 1 |
7,10 |
13 |
Gústaf Ásgeir Hinriksson / Doktor frá Dallandi |
7,07 |
14 |
Eyrún Ýr Pálsdóttir / Njörður frá Feti |
7,00 |
15 |
Bergur Jónsson / Goði frá Ketilsstöðum |
6,87 |
16 |
Ásmundur Ernir Snorrason / Spyrna frá Strandarhöfði |
6,67 |
17 |
Ragnhildur Haraldsdóttir / Katla frá Mörk |
6,63 |
18 |
Arnar Bjarki Sigurðarson / Hrafnfaxi frá Skeggsstöðum |
6,53 |
19 |
Snorri Dal / Engill frá Ytri-Bægisá I |
6,50 |
20 |
Sigurður Sigurðarson / Narfi frá Áskoti |
6,47 |
21 |
Janus Halldór Eiríksson / Blíða frá Laugarbökkum |
6,27 |
22 |
Þórdís Erla Gunnarsdóttir / Askur frá Enni |
6,10 |
23 |
Guðmundur Björgvinsson / Ópera frá Litla-Garði |
5,90 |
24 |
Glódís Rún Sigurðardóttir / Glymjandi frá Íbishóli |
4,97 |
Dómarar kvöldsins voru:
Páll Briem, Svanhildur Hall, Erlendur Árnason, Sigurður Ævarsson og Sigurbjörn Viktorsson.
Yfirdómari kvöldsins var Sigríður Pjetursdóttir.