LuxSpray 50 frá GEA er hágæða spenaúði til sótthreinsunar á spenum sem hefur jafnframt jákvæð áhrif á heilbrigði húðar. Vinnur á sjúkdómsvaldandi bakteríum, gerlum og sveppum. Lanólín og glýseról viðheldur heilbrigði húðar. Inniheldur 1.500 PPM af joði. Tilbúið til notkunar og myndar góðan úða.