Karfan er tóm.
Hægt er að festa tauminn við beislið á tveimur stöðum: V-hringur á miðju baki hundsins og sterk lykkja á brjósti, sem minnkar möguleika hundsins til að toga í tauminn. Beislið er mikið stillanlegt, vel fóðrað og hefur fóðraða kviðól, sem er nauðsynlegt til að auka stöðugleika og þegar lykkjan á bakinu er notuð til að hjálpa hundinum yfir hindranir. Switchback beislið hentar vel hvort sem er í innanbæjargöngur eða í lausagöngu í náttúrunni.
Frekari eiginleikar:
- Vel fóðrað til að auka þægindi við langa notkun.
- Fóðruð kviðól eykur stöðugleika þegar hlutir eru í vösunum og þegar lyfta þarf hundinum.
- Hægt að stilla stærðir á fimm stöðum til að fá sem best passform.
- Tvær taumafestingar: ál V hringur á baki og styrkt lykkja á brjósti.
- Tveir óáberandi renndir vasar fyrir smáhluti.
- Óáberandi handfang til að nýta við að lyfta hundinum eða auka stöðugleika.
- Endurskin á ýmsum stöðum til að auka sýnileika og lykkja fyrir ljós.
Efni:
- Skel: 300 denier pólýester efni
- Stopp: stífur og sterkur svampur
- Fóður: Pólýester net
- Ólar: 100% Pólýester
- Rennilás: Innhverfur YKK rennilás #5
- Taumfesting á brjósti: Níðsterkt nælon
- Smellur: ITW Nexus Mach 1 smellur
- Taumfesting á baki: Rafhúðaður 6061-T6 ál V-hringur
Þvottaleiðbeiningar:
- Þvoið í höndum
- Milt þvottaefni
- Þurrkið við stofuhita
| Brjóstmál | Stærð |
|---|---|
| 43 - 56 cm | XS |
| 56 - 69 cm | S |
| 69 - 81 cm | M |
| 81 - 107 cm | L/XL |
| Stærð | Rúmtak vasa |
|---|---|
| XS | 1.7 lítrar |
| S | 3 lítrar |
| M | 4.3 lítrar |
| L/XL | 7.5 lítrar |