Bætiefnafötur nautgripir

Lýsissteinn Kalksalt 15 kg
Lýsissteinn Kalksalt 15 kg

Lýsissteinn Kalksalt 15 kg

Vörunúmer SALT22207

Lýsissteinn er íslensk framleiðsla frá Flateyri. Hér er um að ræða lýsisbætta kalksaltsfötu, sem er A- ,D-, E-vítamín- og selenbætt og síðast en ekki síst, með íslensku lýsi.

Verðmeð VSK
6.490 kr.
Verðán VSK 5.234 kr.

Lýsissteinn inniheldur melassa sem eykur lystugleika hans og stuðlar að góðri bindingu innihaldsins.

Kalksalt er eins og nafnið gefur til kynna, auðugt af salti, en það inniheldur einnig kalkþörunga sem leggja til kalsíum og magnesíum á lífrænu formi sem nýtist búfénaði vel. Saltið í Kalksalti fellur til við fisksöltun og hefur dregið í sig snefil af nytsamlegum efnum úr fiski, t.d. prótein o.fl.

Hér fer saman hágæða íslensk framleiðsla og endurnýting á salti úr fiskvinnslu.

Kalksalt fæst einnig með hvítlauksextrakti, en hvítlaukurinn getur t.d. haft jákvæð áhrif á kýr þar sem frumutala er farin að hækka í mjólk og á fyrstu stigum júgurbólgu.

Hvítlauksfatan getur einnig hentað vel fyrir hesta á hagabeit eða á ferðalögum þar sem hvítlaukurinn hefur fælandi áhrif á flugur. Þú finnur hvítlauksfötuna einnig í vefverslun. 

Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.

Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstubraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5| 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Verslun Selfossi | Austurvegur 69 | 800 Selfoss | Sími: 540 1165
Skrifstofa  |  Brúarvogi 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is

Opnunartímar verslana