Lífland og Meistaradeildin í Hestaíþróttum endurnýjuðu nýverið samstarfssamning sín á milli og mun deildin á komandi keppnistímabili heita Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum 2024.
"Lífland hefur verið styrktaraðili Meistaradeildarinnar um árabil og erum við hestamenn lánsamir að eiga jafn sterkan og traustan bakhjarl eins og Lífland. Samstarfssamningurinn við Lífland er ákaflega mikilvægur fyrir Meistaradeildina og hlökkum við til samstarfsins veturinn 2024." - segir Sóley Margeirsdóttir, formaður Meistaradeildarinnar.
DAGSKRÁ 2024
25. janúar - Fjórgangur
8. febrúar - Slaktaumatölt
29. febrúar - Fimmgangur
15. mars - Gæðingalist
30. mars - PP1 og 150m skeið
12. apríl - Tölt og 100 m skeið
Keppnin fer fram í HorseDay höllinni Ingólfshvoli og skeiðmót á Brávöllum Selfossi
Frá undirritun samnings. Á myndinni eru frá vinstri :
Ingibjörg Ásta Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri sölu og markaðssviðs Líflands
Sigurbjörn Eiríksson, fráfarandi formaður Meistaradeildarinnar
Sóley Margeirsdóttir, formaður Meistaradeildarinnar
Arnar Þórisson, forstjóri Líflands.