Flýtilyklar
Heilsuvörur gæludýr
Leovet First Aid Silver Salve
Tilvalið á múkk. Inniheldur hreint silfur og sleppir silfurjónum út í sárið. Silfurjónirnar eru sótthreinsandi og virka gegn bakteríum. 150ml.
Vinnur gegn ígerð og hjálpar húðinni við að byggja sig upp aftur. Plöntuolíur veita raka í þurra húð og gera hana mjúka. Tilvalið til að verja kjúku gegn raka og bakteríum (múkki). Hægt er að nota Silver Salve með Leovet Zinkoxidúðanum.
Avókadóolía: Dregst vel inn í húðina, nærir þurra og sprungna húð, smýgur hratt inn í húðina og veitir húðinni raka til lengri tíma, þökk sé A og E vítamínum auka ómettaðra fitusýra í olíunni.
Valurt: Allantónín í valurtinni næra húðina sérstaklega vel. Hún flýtir fyrir myndun fruma og róar húðina.
Bývax: Hefur verndandi og rakagefandi eiginleika. Bývax myndar létta húð á leður, sem ver það gegn utanaðkomandi skaðlegum áhrifum. Nærir húðina og ver hana gegn ertingu og þurrki.
Gullfífilsolía: Eykur seiglu viðkvæmrar og bólginnar húðar og ýtir undir endurnýjun húðarinnar. Eykur blóðflæði og flýtir fyrir bata.
Jojobaolía: Einkar nærandi og smýgur inn í húðina án þess að skilja eftir sig olíukennda húð. Sérlega rakagefandi án þess að vera fitug.
Hrein kamilla: Þykkni úr ferskum valhnetukjörnum ýtir undir dökkan lit og gefur náttúrulegan gljáa. Kamillan er þekkt fyrir að vera mild og nærandi fyrir húðina. Minnkar klára og hjálpar til við að endurnýja þurra og sprungna húð. Kamilla lýsir hár og gefur því gyllta áferð.
Silfur: Silfrið leysir stöðugt frá sér silfurjónir á svæðið sem borið er á. Þessar jónir hafa sýklaeyðandi áhrif og geta haldið bakteríum frá ábornum svæðum. Endurnærir og sefar húð.
Zink: Er mikilvægt fyrir frumuvöxt og ónæmiskerfið.
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.