Taugar & orka

Mervue SuperCalm 60 ml
Mervue SuperCalm 60 ml

Mervue SuperCalm 60 ml

Vörunúmer MLFP8904

SuperCalm er fóðurbætiefni á þykknisformi, fyrir taugaóstyrka hesta þegar von er á auknu áreiti.

Verðmeð VSK
1.590 kr.
Verðán VSK 1.282 kr.

SuperCalm hentar hestum á öllum aldri og kemur að gagni þegar von er á auknu áreiti í umhverfi hestanna. 

Hjálpar til við að róa hesta á náttúrulegan hátt. 

SuperCalm dregur úr líkum á því að hestar verði æstir og örir á ögurstundu.

Lykileiginleikar:

  • Inniheldur amínósýruna tryptófan, en þegar hana skortir getur það haft áhrif á skapsmuni hesta. L-tryptófan er forstigsefni fyrir taugaboðefnið serótónín, sem spilar stórt hlutverk í að róa hesta. 
  • Tryptófan er lífsnauðsynleg amínósýra sem hestar mynda ekki sjálfir og því mikilvægt að þeir fái hana úr fóðri. 
  • Inniheldur magnesíum á lífrænu formi (magnesíumkelat), sem tryggir góða upptöku.
  • Styður hesta í mikilli virkni með því að draga úr taugaspennu og æsingi. 
  • Andoxandi efnaþættir veita stuðning við efnaskipti. 

Fóðrunarleiðbeiningar (m.v. 350 kg hest):
Fullorðnir Hestar: Gefið 40ml u.þ.b. 2 tímum fyrir keppni eða annað álag. Endurtakið eftir þörfum.
Folöld: Gefið 10 – 20ml u.þ.b. 2 tímum fyrir álag (eða eftir leiðbeiningum næringarráðgjafa eða dýralæknis).

Athugið: Hesturinn þarf að hafa óheftan aðgang að hreinu drykkjarvatni.

Vítamín og næringarauki fyrir hesta. SuperCalm er samsett fyrir hesta á öllum aldri, til að draga úr stressi við álagsaðstæður.   

Varan er ekki lyf og ekki skráningarskyld sem slík.

Greiningarþættir: Raki 77%, hráprótein 3,65%, hráaska 15%, hráolía og fita 0,2%, hrátrefjar 0,1%, natríum 0%, magnesíum 2%.
Samsetning: Magnesíumkelat, rósmarín.

Aukefni í 60 ml:
Vítamín:
E-vítamín (3a700 a-tókóferól) 900mg, C-vítamín (3a300) 900mg, þíamín (3a821) 210mg, pýridoxín hýdróklóríð (3a831) 120mg, níkótínsýra (3a314) 120mg.
Amínósýrur: tryptófan (3c441) 2.400mg.

Magn: 60 ml í túpu.

Tengdar vörur

Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.

Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstubraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5| 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Verslun Selfossi | Austurvegur 69 | 800 Selfoss | Sími: 540 1165
Skrifstofa  |  Brúarvogi 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is

Opnunartímar verslana