Flýtilyklar
Saddles & accessories
Acavallo geldýna m/ull og upphækkun
Acavallo ullar undirdýna með geli í sæti og hækkun að framan.
Acavallo Gel undirdýnan með ull og framhækkun sameinar kosti höggvarnar og stama yfirborðs Acavallo geldýnanna. Vel löguð dýnan styður við hnakkinn að framan og fyllir upp í lágar eða vöðvarýrar herðar.
Dýnan kemur í veg fyrir að hnakkurinn renni til. Neðri hluti dýnunnar er klæddur Acavallo ull, náttúrulegu efni sem er ofnæmisfrítt, afar mjúkt og fullkomið til að koma í veg fyrir nudd, sár og blöðrur.
Acavallo geldýna með ull er gerð úr náttúrulegu efni. Hún veldur ekki ofnæmi, er afar mjúk og fíngerð og fullkomin til að koma í veg fyrir nuddsár, skrámur og blöðrur. Náttúruleg ull er eitt besta efnið sem hægt er að nota í undirdýnur og hvers kyns hlífar fyrir hross. Þessi undirdýna sameinar kosti ullarinnar sem liggur næst hestinum og gelsins sem liggur nær hnakknum.
Eiginleikar Acavallo® gels
* Eykur frelsi til hreyfinga
* Heldur hnakknum stöðugum
* Minnkar þrýsting
* Dempar og dreifir þyngd
* Eiturefnalaus
* Má nota beint á húð
* Auðvelt að þvo
Eiginleikar Acavallo® ullar
* 100% náttúruleg
* Örugg til notkunar við húð
* Þétt og mjúk
* Höggdempandi
* Náttúruleg öndun, dregur raka frá yfirborði húðarinnar
* Náttúruleg hitastýring, ullin lagar sig að líkamshita, burtséð frá umhverfishita
Umhirða
* Þvo má dýnuna við 30°C í þvottavél eða í höndum með mildu þvottaefni
* Fjarlægið hár af dýnunni með bursta fyrir þvott
* Notið milt þvottaefni
* Setjið ekki í þurrkara
* Haldið frá beinum hitagjöfum og sólarljósi
* Þurrkið við stofuhita
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.