Lífland tilkynnir hér með um lækkun á kjarnfóðri. Lækkunin nemur allt að 5%, mismunandi eftir tegundum.
Ástæða verðbreytingarinnar er lækkun á heimsmarkaðsverði hráefna til fóðurgerðar. Þrátt fyrir lækkun á mörkuðum undanfarið eru miklar blikur á lofti á hrávörumörkuðum og enn óljóst hvert hráefnaverð stefnir.
Allar nánari upplýsingar veitir undirrituð í síma 540-1100.
Virðingarfyllst,
F.h. Líflands
Bergþóra Þorkelsdóttir framkvæmdastjóri