Nú um mánaðarmótin hækkar Lífland verð á kjarnfóðri um 2%. Hækkunin skýrist fyrst og fremst af verðhækkunum á hráefnum. Þar ber hæst talsverð hækkun á heimsmarkaðsverði á sojamjöli sem og verðhækkanir á vítamínum og steinefnum sem eru tilkomnar vegna minna framboðs.
Þess má geta að þrátt fyrir þessa hækkun hefur fóðurverð frá því í júlí 2016 lækkað að meðaltali um tæp 9%, mismikið eftir tegundum.
Nánari upplýsingar veitir Hlynur Elfar Þrastarson, framkvæmdastjóri sölusviðs.
Uppfærða kjarnfóðurverðskrá Líflands er að finna hér.