Fimmtudaginn 27. janúar var haldið veffræðsluerindi á vegum Líflands þar sem sérfræðingar Trouw Nutrition fjölluðu um nýjar lausnir til að bæta heilsufar mjólkurkúa. Fundurinn var opinn öllum og vel sóttur.
Heilbrigðar kýr gefa af sér meiri og betri afurðir. Með bættu heilsufari í fjósum landsins má bæta líðan dýranna, hafa bein áhrif á afkomu búanna, bæta vinnuumhverfið og efla ímynd íslensks landbúnaðar. Trouw Nutrition, sem starfar fyrir bændur víða um heim, hefur nú þróað líkan sem er auðvelt í notkun, þar sem bændur geta sjálfir greint stöðuna á búi sínu og í kjölfarið sett sér markmið um bætta afkomu. Í þessari veffræðslu var meðal annars komið inná helstu þekktu áhættuatriðin á lífskeiði mjólkurkúa og hvernig hægt er að mæta þeim með fyrirbyggjandi hætti.
Veffræðsluerindið er núna orðið aðgengilegt og við hvetjum þá sem misstu af því til að líta á það hér fyrir neðan.