Haustið er gengið í garð og því fylgja hin árvissu haustverk, leitir, réttir, fjárrag og síðast en ekki síst sláturtíðin og vinnsla afurða. Nú má finna aukið og samræmdara úrval vinnsluvöru fyrir sláturtíðina í verslunum Líflands en einnig í vefverslun okkar.
Í úrvalinu má finna allt mögulegt til kjötvinnslu, sláturgerðar og pökkunar á kjöti og sláturafurðum:
- Sláturkeppir og sláturlengjur
- Bjúgnaplast og hrossabjúgnagarnir
- Sláturnælur og sláturgarn
- Kjötnet sem hentar ýmist til reykingar og suðu
- Salt, nítrítsalt, pækilmælar og krydd
- Vakúmpokar í rúllum og föstum stærðum ásamt vakúmpökkunarvél
- Plastfötur og tunnur fyrir matvæli
- Hnífar, kjötkrókar, brýni, brýnistál og önnur áhöld
Sjón er sögu ríkari. Kynntu þér úrvalið í verslunum okkar eða í vefverslun Líflands.