Vegna yfirstandandi framkvæmda á húsnæði verslunar okkar á Blönduósi geta viðskiptavinir okkar á því svæði orðið varir við skerta þjónustu um tíma.
Erfitt verður að afgreiða smávörur, skó og fatnað en við reynum eftir bestu getu að afgreiða rekstrarvörur bænda. Ekki verður skert þjónusta á afgreiðslu fóðurs og öðrum nauðsynjavörum.
Á meðan framkvæmdir eru í gangi er gengið inn um gamla innganginn að austanverðu.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kanna að valda en vonum að framkvæmdir gangi fljótt og vel fyrir sig .
Sjáumst í nýrri og endurbættri verslun.
Starfsfólk Líflands Blönduósi