Lífland hefur nú birt nýja verðskrá sáðvöru fyrir árið 2015. Jafnframt er komið út nýtt og endurbætt fréttabréf með ítarlegri umfjöllun um vöruúrvalið.
Lífland hefur um árabil boðið upp á breiða flóru sáðvöru til landbúnaðarnota. Boðið er upp á 21 kornyrki til þreskingar og mjög fjölbreytt úrval grænfóðurs og grastegunda til túnræktar. Meðal nýjunga má nefna nýja tvíraðabyggið Kannas, sænskt úrvalsyrki sem lofar góðu, finnska sexraða byggyrkið Jalmari, sem einnig er lofandi og að líkindum á svipuðu róli og Wolmari og Aukusti. Vallarfoxyrkið Tryggve er nýtt sænskt yrki sem við eigum von á að verði framtíðaryrki hér á landi og er það jafnframt á boðstólunum núna.
Skoðaðu sáðvöruverðlista Líflands fyrir 2015 hér - kynntu þér lækkuð verð
Aukið og endurbætt sáðvörufréttabréf Líflands hér
Nánari upplýsingar hjá söluráðgjöfum Líflands í sadvara@lifland.is eða s. 540-1138.