Miðasala meistaradeildarinnar i verslun Líflands Lynghálsi 3

Forsala aðgöngumiða fyrir fyrsta mót Meistaradeildar í hestaíþróttum 2013 er hafin. Mótið hefst klukkan 18:30 fimmtudaginn 31.janúar með veglegri opnunarhátíð. Við byrjum á fjórgangi. Gera má ráð fyrir að margir af sterkustu hestum landsins verði skráðir til leiks.

Knapar mæta á fyrstu æfingar í Ölfushöllinni um n.k. helgi og þá má búast við miklum tilþrifum. Gera má ráð fyrir harðir baráttu allt frá fyrstu keppni.

Í tilefni 10 ára afmæli Meistaradeildar í hestaíþróttum verður blásið til veglegrar opnunarhátíðar þar sem liðin og styrktaraðilar verða kynnt, Guðni Ágústsson mun ávarpa gesti. Brokkkórinn mætir og svo kemur Ingó veðurguð og tekur nokkur lög. Lofar góðu, frábært kvöld og spennandi keppni. 

Aðgangseyrir á mótið er 1.500 kr. fyrir 13 ára og eldri, en 500 kr. fyrir 12 ára og yngri. Miðarnir eru til sölu í Líflandi, Top Reiter og Baldvini og Þorvaldi á Selfossi. Á sömu stöðum er einnig hægt að kaupa ársmiða á deildina sem kostar 5.000 kr. 

 


Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstabraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5 | 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Verslun Selfossi | Austurvegur 69 | 800 Selfoss | Sími: 540 1165
Skrifstofa  |  Brúarvogur 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is

Opnunartímar verslana