Þetta er fyrsta árið sem Lífland er með lið í deildinni.
Við erum afar stolt af knöpunum okkar en þeir eru Davíð Jónsson, Sigursteinn Sumarliðason, Guðmundur Björgvinsson, Jakob S. Sigurðsson og John K. Sigurjónsson.
Í kvöld verður keppt í fjórgangi og hefst mótið kl: 19:00 en húsið opnar 17:00.
Miðasala er í fullum gangi inná tix.is og svo verður bein útsending frá öllum viðburðum á Stöð 2 sport.
Í ár verður keppt í átta greinum:
Dagsetning | Grein | Staðsetning | ||
1. febrúar | Fimmtudagur | 18:30 | Fjórgangur V1 | Samskipahöllin, Spretti Kópavogi |
15. febrúar | Fimmtudagur | 19:00 | Slaktaumatölt T2 | Samskipahöllin, Spretti Kópavogi |
1. mars | Fimmtudagur | 19:00 | Fimmgangur F1 | Samskipahöllin, Spretti Kópavogi |
15. mars | Fimmtudagur | 19:00 | Gæðingafimi | TM höllin, Fáki Víðidal |
31. mars | Laugardagur | 13:00 | Gæðingaskeið og 150m. skeið | |
6. apríl | Föstudagur | 19:00 | Tölt T1 og flugskeið | TM höllin, Fáki Víðidal |
Guðmundur Björgvinsson, liðstjóri, er tamningamaður FT. Hann rekur tamningastöð á Efri-Rauðalæk ásamt konu sinni Evu Dyröy. Guðmundur er m.a. Íslandsmeistari í fjórgangi 2012 og 2015, hefur setið nokkrum sinnum í íslenska landsliðinu þ.á.m. árið 2013 þegar hann nældi sér í tvö gull á kynbótabrautinni og árið 2015 þegar hann varð heimsmeistari í fjórgangi. Guðmundur var kosinn knapi ársins árið 2012 og 2015 og skeiðknapi ársins 2017 en hann sló Íslandsmetið í 100m. skeið árið 2017. Guðmundur sigraði einstaklingskeppnina í Meistaradeildinni árið 2013
Davíð Jónsson starfar sem tamningamaður á Skeiðvöllum. Davíð hefur látið mikið að sér kveða á skeiðbrautinni síðustu ár en hann sigraði 100m. skeiðið á LM2012 í Reykjavík á hryssunni Irpu frá Borgarnesi.
Jakob Svavar Sigurðsson er tamningamaður og reiðkennari frá Hólaskóla. Hann rekur tamningastöð að Fákshólum. Hann hlaut knapaverðlaun FT á LM2008. Hann er margfaldur Íslandsmeistari og varð heimsmeistari í tölti árið 2017 á Gloríu frá Skúfslæk. Jakob sigraði B flokkinn á LM2016 á Nökkva frá Syðra-Skörðugili og varð í þriðja sæti í A flokki á Skýr frá Skálakoti. Hann hefur jafnframt verið að gera góða hluti í kynbótasýningum. Jakob var kosinn íþróttaknapi ársins 2012, 2013 og 2017, gæðingaknapi ársins 2016 og knapi ársins 2017.
John Kristinn Sigurjónsson er tamningamaður FT og starfar við tamningar í Fáki í Víðidal. John hefur verið að gera góða hluti í keppni og kynbótasýningum á undanförnum árum. John sigraði m.a. fimmgang meistaradeildarinnar 2012 á stóðhestinum Konsert frá Korpu.
Sigursteinn Sumarliðason er tamningarmaður á Ármóti. Sigursteinn hefur ná góðum árangri á keppnisvellinum, bæði í gæðinga- og íþróttakeppni, en þá sérstaklega í tölti en hann vann það afrek að verða Landsmótsmeistari í tölti í tvö ár í röð, LM2011 og LM2012 í Reykjavík.