18.03.2022
Við hjá Líflandi þökkum kærlega auðsýndan áhuga á veffræðsluerindi okkar sem haldin var fimmtudaginn 17. mars.
Upptaka af erindinu „Hverju á að sá í vor 2022“ er nú aðgengileg hér fyrir neðan þar sem Jóhannes Baldvin Jónsson, vörustjóri sáðvöru, fjallaði um áherslur vorsins og helstu nýjungar í sáðvöruúrvali Líflands. Áhersla á belgjurtir til niturbindingar, fjölærum og einærum smárum, ertum, fóðurflækjum, bóndabaunum, fóðurlúpínum og fleiri nýjungum. Við hvetjum þá sem misstu af erindinu að horfa.