Opið hús á Blönduósi

Það er opið hús milli 13 og 17 í Bændaþjónustunni á Blönduósi í dag. 

Norðlenskir bændur hafa um árabil reitt sig á skjóta og góða þjónustu Bændaþjónustunnar. Það mun ekki breytast en nú hefur Bændaþjónustan tekið saman höndum við Lífland til að efla og treysta starfsemina. Við hjá Líflandi hlökkum til að fá að taka þátt í að styðja við blómlegan landbúnað á svæðinu í góðu samstarfi við reynsluboltana Eymund í Varmahlíð og Hávarð á Blönduósi. 

Lífland sýnir ræktarsemi við grunnstoðir mannlífs um allt land. Með góðri ráðgjöf og þjónustu, fjölbreyttu vöruúrvali og vísindalegum vinnubrögðum sköpum við góðan jarðveg fyrir hverskonar rækt; jarðrækt, búfjárrækt, nautgriparækt og hestarækt.

Verslanir Líflands eru í dag á Lynghálsi 3 í Reykjavík og á Lónsbakka Akureyri. Fyrirtækið mun halda versluninni að Efstubraut 1 á Blönduósi óbreyttri og reka áfram undir merkjum Bændaþjónustunnar undir stjórn Hávarðar Sigurjónssonar og þjóna íbúum svæðisins og öðrum sem þangað leita. Eymundur mun áfram sinna sinni góðu þjónustu í Skagafirði og njóta stuðnings öflugs ráðgjafateymis á landbúnaðarsviði Líflands.

Við bjóðum norðlenska bændur velkomna í Bændaþjónustuna Blönduósi og Saurbæ. 

Komdu við á opnu húsi hjá Bændaþjónustunni á Blönduósi föstudaginn 28. júní milli kl. 13 og 17. Við verðum með góð tilboð, kynnum vörur og þjónustu Líflands og bjóðum upp á léttar veitingar. 


Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstabraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5 | 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Verslun Selfossi | Austurvegur 69 | 800 Selfoss | Sími: 540 1165
Skrifstofa  |  Brúarvogur 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is

Opnunartímar verslana