HAUSTFERÐ TIL HOLLANDS
Lífland efnir til hópferðar til Hollands dagana 27. – 31. október.
Ferðin er einkum hugsuð fyrir kúabændur sem vilja fræðast um það nýjasta í hollenskum kúabúskap.
Eftirtaldir staðir verða heimsóttir:
- Fagsýning fyrir bændur, haldin í Hardenberg í Hollandi. Sýnendur eru margir helstu framleiðendur tækja og búnaðar fyrir kúabændur.
- Rannsóknarbú sem Trouw Nutrition rekur í Kempenshof, en þar eru mjólkaðar 100 kýr.
- Tvö nýleg og fullkomin kúabú. Annað er með mjaltaþjóni og hitt með hringekju.
Dvalið verður á NH hótelinu, nærri lestarstöðinni í Utrecht. Hótelið, sem er fjögurra stjörnu, er í göngufæri við miðbæinn í Utrecht, en hann er þekktur fyrir aðlaðandi umhverfi, meðal annars gamlar byggingar og sýki auk fjölda veitingahúsa og verslana.
Verð kr. 115.000 á mann, miðað við gistingu í tveggja manna herbergjum. Aukakostnaður er kr. 30.000 miðað við einn í herbergi.
Eftirfarandi er innifalið:
Flug með Icelandair til og frá Amsterdam.
Gisting á hóteli í Utrecht í fjórar nætur með morgunverði.
Allar ferðir innan Hollands.
Þrír kvöldverðir.
Fararstjóri verður Jón Þorsteinn Gunnarsson.
Tilkynna þarf þátttöku fyrir 24. júní á netfangið jonth@lifland.is eða í síma 897-7468.
Fjöldi þátttakenda er áætlaður að hámarki 35 manns.
Allar frekari upplýsingar veita söluráðgjafar Líflands.