Skiladagur liðinn í Smákökusamkeppni Kornax

Smákökusamkeppni Kornax 2020

Nú er skiladagur liðinn í Smákökusamkeppni Kornax 2020 og bárust næstum því 300 uppskriftir ásamt myndum í keppnina að þessu sinni!
Í dag mun Sylvía Haukdal kökugerðarsnillingur sýna frá því þegar hún bakar fyrstu uppskriftina af þeim fimm sem eru komnar í úrslit.
Þær smákökur sem verða bakaðar fyrst heita………. Súkkulaðiboltar! 

Sylvía mun baka eina uppskrift á dag fram á föstudag en þá verða úrslit tilkynnt. Hægt er að fylgjast með bakstrinum í Story á Instagram og Facebook síðu Kornax.

Við erum svo þakklát fyrir þessar viðtökur og glöð að sjá hversu margir hafa gert sér glaðan dag og gert tilraunir með allskyns nýjungar við gamlar fjölskylduuppskriftir. Við höfum fengið allskonar uppskriftir til okkar bæði nýjar sem sendandi hefur þróað sjálfur, en einnig uppskriftir sem fylgt hafa sömu fjölskyldum kynslóð fram af kynslóð og verið bakaðar á hverju ári.

Þó að ekki hafi verið hægt að hafa keppnina með hefðbundnu sniði í ár þá langar okkur að þakka fyrir þessar frábæru móttökur með því að gefa öllum þeim sem sendu inn uppskrift til okkar gjafapoka með rauðu og bláu hveiti frá Kornax, eggjabakka frá Nesbúi og súkkulaði í baksturinn frá Nóa Síríus.
Við munum senda ykkur tölvupóst með upplýsingum um hvenær og hvernig verður hægt að nálgast gjafapokann.

En haldið áfram að fylgjast með næstu daga því úrslit verða tilkynnt á föstudaginn 20. nóvember!
☺️


Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstabraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5 | 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Verslun Selfossi | Austurvegur 69 | 800 Selfoss | Sími: 540 1165
Skrifstofa  |  Brúarvogur 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is

Opnunartímar verslana