MÁTTUR – hestafóður á tilboði!

Er hesturinn þinn ekki að halda holdum? Verður hann örari og viðkvæmari af kjarnfóðurgjöf? Vantar þig kjarngott viðbótarfóður fyrir hestinn?

Þá er svarið MÁTTUR en Máttur er fituríkt, kögglað kjarnfóður fyrir hross sem hentar einkar vel fyrir holdgranna hesta sem þarf að fita en einnig í minni skömmtum sem viðhaldsfóður fyrir reiðhesta. MÁTTUR inniheldur orkugjafa sem losna hægar og jafnar en þetta gerir öra hesta viðráðanlegri.

Snefilefna- og vítamíninnihald fóðursins er byggt á víðtækum blóðrannsóknum á hestum á Íslandi, m.a. með tilliti til selen- og sinkinnihalds, en fóðrið var þróað í samráði við við erlenda sérfræðinga í hestafóðurfræðum og Dr. Susanne Braun, sem er íslenskum hestamönnum af góðu kunn og lagt hefur stund á blóðrannsóknir í íslenskum hrossum um árabil.

Ekki spillir fyrir að MÁTTUR er framleiddur í fóðurverksmiðju Líflands á Íslandi úr bestu fáanlegum hráefnum á hverjum tíma. 

MÁTTUR er nú á 20% afslætti í öllum verslunum Líflands sem og í vefverslun Líflands! Kynntu þér tilboðið hér. 

Lykileiginleikar:

  • Úrvalsfóður fyrir holdgranna reiðhesta sem þarf að byggja upp.
  • Fituríkt kjarnfóður með hátt hlutfall hæglosaðrar orku sem hesturinn nýtir jafnt og þétt.
  • Hægari orkulosun gerir öra hesta viðráðanlegri.
  • Styður við heilbrigði hára- og hófafars.
  • Hentar sem viðhaldsfóður og fyrir hesta sem hættir við hófsperru.
  • Inniheldur gæðaprótein og steinefnablöndu sem sérlöguð er að þörfum íslenskra hesta.

Máttur fæst í 25 kg handhægum smásekkjum en einnig í 500 kg stórsekkjum.

Tilboðið gildir til og með 4. júní 2023.


Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstabraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5 | 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Verslun Selfossi | Austurvegur 69 | 800 Selfoss | Sími: 540 1165
Skrifstofa  |  Brúarvogur 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is

Opnunartímar verslana