Líflandsmót Fáks 2019

Líflandsmót Æskulýðsdeildar Fáks 2019 verður haldið í TM reiðhöllinni Víðidal þann 14. apríl. Þetta er kjörið tækifæri fyrir unga knapa að stíga sín fyrstu skref.

Á mótinu verður keppt í eftirfarandi flokkum:

Pollaflokkur (2010 og síðar) Teymdir / ríða sjálfir
Barnaflokkur (2006 – 2009) Tölt T7, tölt T3, fjórgangur V2, fjórgangur V5.
Unglingaflokkur (2002 – 2005) Tölt T7, tölt T3, fjórgangur V2, fjórgangur V5 og fimmgangur F2.

Skráningargjald er 3.000 kr. á grein og skráning fer fram á Sportfeng til miðnættis miðvikudags 10. apríl.  http://skraning.sportfengur.com/

Skráning í pollaflokk verður í veitingasölunni til kl: 12 á keppnisdegi. Ekkert skráningargjald er í pollaflokkinn.

ATH. mótsnefnd áskilur sér þann rétt að fella niður flokk ef næg þátttaka næst ekki.

Útskýring á greinum (gangtegundir sýndar eftir fyrirmælum þular):

  • T3 (hægt tölt, snúið við, tölt með hraðamun, yfirferðartölt)
  • T7 (hægt tölt, snúið við, frjáls ferð á tölti) *
  • V2 (hægt tölt, hægt til milliferðar brokk, meðalfet, hægt til milliferðar stökk, yfirferðartölt)
  • V5 (frjáls ferð á tölti, hægt til milliferðar brokk, meðalfet, hægt til milliferðar stökk)
  • *Knapar sem taka þátt í T7 mega ekki taka þátt í T3 á sama móti. Og knapar sem taka þátt í V5 mega ekki taka þátt í V2 á sama móti.

Nánari upplýsingar um mótið, dagskrá, ráslistar o.fl. verða birtar á www.fakur.is, netmiðlum hestamanna og á Facebook þegar nær dregur.

Veitingasala verður í TM-Reiðhöllinni.

Hlökkum til að sjá sem flesta!


Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstabraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5 | 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Verslun Selfossi | Austurvegur 69 | 800 Selfoss | Sími: 540 1165
Skrifstofa  |  Brúarvogur 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is

Opnunartímar verslana