Lífland og Meistaradeild æskunnar undirrita samstarfssamning

Mynd frá undirritun samstarfssamningsins
Mynd frá undirritun samstarfssamningsins

Síðastliðinn laugardag undirrituðu Arnar Þórisson forstjóri Líflands og Jóna Dís Bragadóttir formaður stjórnar deilarinnar samstarfssamning í verslun Líflands á Lynghálsi í Reykjavík. Samhliða undirrituninni voru knapar í liðunum kynntir.

Fyrsta mótið í Meistaradeild Líflands og æskunnar fór fram í gær, sunnudaginn 12. febrúar á Fákssvæðinu í Víðidal og var keppt í fjórgangi. Í ár eru liðin 11, hvert með fjórum knöpum og alls eru því keppendurnir á aldrinum 13-17 ára - 44 talsins á þeim mótum sem framundan eru.

Í A-úrslitunum varð nokkuð um vendingar, því upp úr fimmta til sjöunda sæti inn í úrslitin kom Eik Elvarsdóttir á Heiluni frá Holtabrún, sá og sigraði með einkunnina 7,10. Önnur varð Svandís Aitken á Fjöður með 7,07 og þriðji Ragnar Snær á Ása með 7,03. Ansi mjótt á mununum þarna og æsispennandi allt til loka. Stigahæsta liðið í fjórganginum var lið Kambs með 73,5 stig.

Lífland hefur stutt Meistaradeild æskunnar um margra ára skeið og er aðal bakhjarl deildarinnar. Síðastliðinn laugardag undirrituðu Arnar Þórisson forstjóri Líflands og Jóna Dís Bragadóttir framkvæmdastjóri meistaradeild æskunnar samstarfssamning í verslun Líflands á Lynghálsi í Reykjavík. Samhliða undirrituninni voru knapar í liðunum kynntir.

Líflandi er afar kært að styðja við barna- og unglingastarf innan hestaíþróttarinnar. Deildin er vettvangur til að skapa ungum keppendum grundvöll til að þróast sem keppnisfólk.

Það verður óhætt að segja að Meistaradeild Líflands og æskunnar stefnir í að verða ótrúlega skemmtileg og spennandi í ár. Deildin lengir keppnistímabilið og gerir kröfur til þjálfunar, hestakosts og reiðmennsku, um leið og umgjörðin er glæsileg og hæfir tilefninu.

Allar upplýsingar um Meistaradeild Líflands og æskunnar er að finna á www.mdeild.is


Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstabraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5 | 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Verslun Selfossi | Austurvegur 69 | 800 Selfoss | Sími: 540 1165
Skrifstofa  |  Brúarvogur 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is

Opnunartímar verslana