Kornax hveitið hlýtur alþjóðlega matvælaöryggisvottun, FSSC 22000

Lífland sem framleiðir og selur Kornax hveitið hlaut á dögunum alþjóðlegu matvælaöryggisvottunina FSSC 22000. Vottunin nær yfir löndun á korni, framleiðslu á hveiti og rúg, lager og útkeyrslu.

Kornax vörumerkið sem er hluti af matvælasviði Líflands er leiðandi vörumerki á Íslandi til margra ára í hveiti fyrir bæði bakstursiðnaðinn og neytendamarkaðinn. Við framleiðslu á Kornax vörum er einungis notað hágæðakorn þar sem baksturseiginleikar hveitis ráðast af gæðum kornsins.

Rannveig Hrólfsdóttir gæða- og starfsmannastjóri Líflands,, Það er stefna Líflands að tryggja viðskiptavinum sínum að vörur og þjónusta fyrirtækisins uppfylli væntingar og þarfir þeirra hvað varðar gæði og öryggi. Að fá alþjóðlega matvælaöryggisvottun er mikil viðurkenning og staðfesting á gæðum við framleiðslu Kornax hveitisins. Vottunin tryggir að unnið sé eftir verkferlum sem ná til allra þátta í framleiðslunni, vöruhýsingu og útkeyrslu þar sem stöðugar umbætur og eftirfylgni eiga sér stað. Að styðjast við alþjóðlega stjórnunarstaðla og vottunarstaðfesting þeim tengdum er því jákvæð fyrir Kornax í alla staði, starfsfólkið, hagaðila og neytendur.
Segir Rannveig Hrólfsdóttir gæða- og starfsmannastjóri Líflands/Kornax.


Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstabraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5 | 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Verslun Selfossi | Austurvegur 69 | 800 Selfoss | Sími: 540 1165
Skrifstofa  |  Brúarvogur 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is

Opnunartímar verslana