Ísland með sterkt lið á heimsmeistaramóti íslenska hestsins

Heimsmeistaramót íslenska hestsins hófst í gær í Oirschot í Hollandi. Keppnisrétt eiga knapar úr öllum aðildarlöndum FEIF, alþjóðasamtaka íslenska hestsins, en þau eru alls 22 og eru aðallega Evrópulönd en einnig Kanada, Bandaríkin, Nýja Sjáland og Ástralía.

Lífland hefur um árabil verð einn aðalstyrktaraðili landsliðsins í hestaíþróttum og svo er einnig í ár. Lífland sér liðinu fyrir keppnisfatnaði eins og derhúfum, skyrtum frá KINGSLAND, hönskum frá ROECKL, hjálmum frá CASCO og buxum og jökkum frá TOP REITER.

Íslensku knaparnir byrjuðu fyrsta dag mótsins með látum og stendur Ísland efst í fimm flokkum af sex í kynbótasýningum mótsins. Seinni umferð þeirra sýninga er þó eftir en staðan er góð. Fyrsta grein íþróttakeppninnar fór svo fram í gærkvöldi þegar keppt var í gæðingaskeiði. Þar gerðu okkar menn þeir Elvar Þormarsson á Fjalladís og Benedikt Ólafsson á Leiru Björk sér lítið fyrir og tóku sinn heimsmeistaratitilinn hvor, Elvar í flokki fullorðinna og Benedikt í flokki ungmenna.

Í dag miðvikudag heldur keppni áfram og komið að fimmgangi. Að honum loknum taka við yfirlitssýningar kynbótahrossa og síðan verður keppt í 250m skeiði í kvöld. Dagskrá mótsins er að finna í heild sinni á vef mótsins, www.wc2023.nl.

Við erum stolt af liðinu okkar á HM2023 í Hollandi og fylgjumst vel með gangi mála á vefmiðlum hestamanna, Alendis streymisveitunni og RÚV sem er á staðnum og miðlar fréttum á vef sínum og gerir 6 samantektarþætti sem sjónvarpað er í lok hvers keppnisdags.

Áfram ÍSLAND

HM2023 í HollandiHM2023 í HollandiHM2023 í HollandiHM2023 í HollandiHM2023 í HollandiHM2023 í HollandiHM2023 í HollandiHM2023 í Hollandi


Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstabraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5 | 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Verslun Selfossi | Austurvegur 69 | 800 Selfoss | Sími: 540 1165
Skrifstofa  |  Brúarvogur 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is

Opnunartímar verslana