Lífland

Jólaleikur Ó já, jólastemningin læddi sér inn um bréfalúguna á skrifstofu Landsmóts í morgun með jólatónlist, kertaljósi og piparkökum í

Jólaleikur













Ó já, jólastemningin læddi sér inn um bréfalúguna á skrifstofu Landsmóts í morgun með jólatónlist, kertaljósi og piparkökum í bunkum. 

Við viljum því endilega minna ykkur á jólaleikinn okkar sem fór í gang um leið og miðasalan hófst. Veglegir vinningar bíða í pottinum en allir seldir miðar fram að jólum fara sjálfkrafa í pottinn. Athugið að á forsöluverði kostar vikupassi aðeins 10.000 krónur með LH/BÍ afslætti og N1 korts afslætti, en fullt verð er 18.000 krónur.

Á Þorláksmessu förum við í sparifötin, fáum okkur smákökur, malt & appelsín og drögum út heppna vinningshafa. Það er til mikils að vinna því meðal vinninga eru flugmiðar til Evrópu með Icelandair, gjafabréf í Kringluna, leikhúsmiðar, inneign hjá N1, Mountain Horse úlpa, hótelgisting í 2 nætur á Hilton Reykjavík Nordica og endurgreiðsla á keyptum landsmótsmiðum. 

Potturinn bíður því stútfullur af glæsilegum vinningum sem væri ekki amalegt að fá sem auka jólagjafir þetta árið. Smelltu þér á miðasöluvef landsmóts á www.landsmot.is svo þú eigir möguleika á vinningi! 

Húrra fyrir þv


Karfa

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf